OpenAI hefur staðfest að fyrirtækið hyggst leggja niður myndbandagerðarforritið Sora, sem hefur vakið mikla athygli fyrir að búa til stutt myndbönd með persónum úr þekktum sýndarheimum, þar á meðal úr leikjum og teiknimyndaseríum á borð við Pokémon og Dragon Ball.
Ákvörðunin kemur á sama tíma og fyrirtækið beinir sjónum sínum í auknum mæli að hugbúnaðarþróun og viðskiptalausnum fyrir mögulegt hlutafjárútboð síðar á árinu. Það er Wall Street Journal sem greinir frá.
We’re saying goodbye to the Sora app. To everyone who created with Sora, shared it, and built community around it: thank you. What you made with Sora mattered, and we know this news is disappointing.
We’ll share more soon, including timelines for the app and API and details on…
— Sora (@soraofficialapp) March 24, 2026
Sora vakti ekki síst umræður innan leikja- og afþreyingargeirans þar sem tæknin gerði notendum kleift að búa til efni byggt á þekktum leikjaheimum og persónum án mikillar fyrirhafnar. Fyrir suma þótti þetta spennandi þróun sem gæti opnað nýjar leiðir í efnisgerð, en fyrir aðra var um að ræða ódýra „slop“-framleiðslu sem grafið hefur undan höfundarrétti.
let’s shut down all AI generated platforms not just sora pic.twitter.com/rQDLABqdyj
— bradley 🩷 (@bradleyberdecia) March 24, 2026
Áður hafði Disney lýst yfir áhuga á að fjárfesta umtalsverðar fjárhæðir í tækninni, meðal annars til að nýta eigin persónur í slíku efni. Sú fjárfesting virðist nú úr sögunni, sem margir túlka sem merki um að bjartsýni í kringum gervigreindarframleiðslu á afþreyingarefni sé farin að dvína.
Viðbrögð á netinu hafa ekki látið á sér standa og virðast margir fagna lokunum. Leikjasamfélagið hefur einnig tekið þátt í umræðunni, ekki síst vegna nafnsins Sora sem minnir á aðalpersónuna í Kingdom Hearts, sem hefur orðið uppspretta ýmissa spaugilegra athugasemda.
Þrátt fyrir að þetta marki ekki endalok gervigreindar í afþreyingu telja margir að þetta sé fyrsta skrefið í átt að raunsærri nálgun á tæknina. Fyrir leikjaiðnaðinn gæti þetta þýtt að áherslan færist aftur meira yfir á vandaða framleiðslu frekar en sjálfvirka efnisframleiðslu.
>Farmers blocking AI data centers being built
>Sora closing down
>Disney ending the OpenAI deal pic.twitter.com/RcKyKLXiyV— Doc Strangelove (@DocStrangelove2) March 24, 2026
SORA IS SHUTTING DOWN
AI IS LOSING BILLIONS
NETANYAHU IS MISSING
HANNAH MONTANA HAS RETURNED
SINNERS WON THE OSCARS
BAD BUNNY IS KING
MAMDANI HAS SAVED NYC
SEATTLE WON THE SUPER BOWL
TOMODACHI LIFE HAS GAY PEOPLE
YOSHI’S BLACK
THE WORLD IS HEALING
WOKE IS BACK https://t.co/4IAGLMyDcz pic.twitter.com/eHk2WqBFuq
— Official Chicken Little Movie Account (@RANDOMC_L_EVENT) March 25, 2026
„Sora AI is shutting down“ https://t.co/zp9RHu3haR pic.twitter.com/NxyBn8TGez
— Adam/Piss Kirby(I LOVE FROST BONNET) (@piss_kirby_) March 25, 2026
oh you think it’s soo funny that sora shit the bed and openai is going down the toilet, huh, well remember there are ppl that are sad about it and that’s funny too
— fredesque (@FredTaming) March 24, 2026
Myndir; unsplash.com





