Kia Íslandsmeistaramót Ungmenna í rafíþróttum fór fram um helgina í Next Level Gaming í Egilshöll. Fjöldi ungmenna frá níu félögum tókust á í Fortnite og Minecraft í spennandi keppni þar sem keppendur sýndu frábæra takta þrátt fyrir ungan aldur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rafíþróttasambandi Íslands.
Mótinu lauk með verðlaunaafhendingu þar sem sigurvegarar tóku við bikar og allir keppendur hlutu medalíur.
Fortnite Einstaklingskeppni (Solo)
Í flokki eldri keppenda sýndi Brimir Leó Bjarnason (FH) mikla yfirburði, en hann lauk keppni með samtals 230 stig. Félagi hans úr Hafnarfirðinum, Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson (FH) tók annað sætið með 164 stig. Rétt á eftir honum var hann Sigurjón Bjarni Óskarsson (C3LL4R) sem hafnaði í þriðja sæti með 144 stig.
Það var mikil barátta í flokki yngri keppenda. Þar var hann Hjálmar Sigurður Hauksson (FH) sem stóð uppi sem sigurvegari með 92 stig eftir góða spilamennsku yfir helgina.
Ekki munaði miklu á öðru og þriðja sætinu, en þar voru aðeins tvö stig á milli keppenda. Bjarki Geir Sigurjónsson (Breiðablik) hoppaði upp í annað sætið með 72 stig eftir góða spilamennsku í loka leik helgarinnar, en Baltasar Ingi Sigurðsson (FH) þurfti því að sætta sig við þriðja sætið með 70 stig.
Fortnite Liðakeppni (Duos)
Í eldri flokki var hreinlega um FH-sýningu að ræða, þar sem keppendur þeirra tóku efstu þrjú sætin. Benedikt Nóel Benediktsson og Alexander Orri Eiríksson fóru á kostum þar sem þeir unnu 4/7 leikjum helgarinnar og tryggðu sér fyrsta sætið með 286 stig.
Í öðru sæti voru Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson og Hjálmar Sigurður Hauksson með 254 stig og í þriðja sæti lentu Baltasar Ingi Sigurðsson og Brimir Leó Bjarnason með 190 stig.
Í yngri keppnisflokk munaði aðeins örfáum stigum á efstu tveim liðunum. Það voru þeir Kári Hrafn Andrason og Oddur Hersveinn (Ármann) sem stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða baráttu við Arnar Leó Níelsson og Dag Snæ Franzson (FH).
Ármenningarnir söfnuðu 130 stigum, aðeins sex stigum meira en tvíeykið frá FH, sem máttu þola það að lenda í öðru sæti eftir æsispennandi loka leik. þeir Pétur Ingi Oddsson og Bjarki Geir Sigurjónsson (Breiðablik) tryggðu sér síðan þriðja sætið með 86 stig.
Minecraft
Minecraft-hluti mótsins bauð upp á jafna og skemmtilega keppni þar sem reynt var á ólíka færni. Á Laugardeginum var keppt í Þrautakeppni þar sem Ólafur Helgi Rúnarsson (Rafmos) stóð uppi sem sigurvegari. En á Sunnudeginum var síðan Byggingarkeppni, og var það hann Fróði Hákonarson (Breiðablik) sem tók gullið.
Myndir: rafithrottir.is









