Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Áhrifavaldar og blaðamenn sagðir hafa verið keyptir til að skaða MindsEye
    MindsEye
    Tölvuleikir

    Áhrifavaldar og blaðamenn sagðir hafa verið keyptir til að skaða MindsEye

    Chef-Jack08.02.20263 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    MindsEye

    Stofnandi og forstjóri MindsEye hefur sakað ónefndan bandarískan risa um skipulagða skemmdarherferð gegn leiknum og stúdíóinu Build a Rocket Boy, herferð sem hann fullyrðir að hafi kostað yfir eina milljón evra á síðasta ári.

    Þetta kom fram á innanhússfundi með starfsfólki Build a Rocket Boy seint í janúar, þar sem Mark Gerhard opnaði fundinn á dramatískum nótum og sagðist vera „búinn að hafa hendur í hári þeirra sem stóðu að skemmdarverkunum“.

    Upptaka af fundinum var send til Insider Gaming með því skilyrði að hún yrði ekki birt opinberlega, en miðillinn birti hana engu að síður þar sem málið þótti fréttnæmt.

    Samkvæmt Gerhard var herferðin fjármögnuð af „mjög stóru bandarísku fyrirtæki“, þó hann bætti við að um væri að ræða aðila sem væri „líklega ekki sá sem fólk heldur fyrst“. Hann hélt því jafnframt fram að fyrirtækið hefði greitt bresku stofunni Ritual Network fyrir að framkvæma herferðina. Gerhard lýsti Ritual Network á fundinum með ansi litríku orðalagi og sakaði fyrirtækið um að hafa greitt áhrifavalda, blaðamenn og jafnvel starfsmenn Build a Rocket Boy fyrir að skaða orðspor MindsEye og stúdíósins.

    Meðal þeirra sem Gerhard nefndi var áhrifavaldurinn Cyberboi, sem hann hafði nýverið hótað með lögbanni í gegnum Discord, auk þriggja blaðamanna og ótilgreindra starfsmanna fyrirtækisins. Allir þessir aðilar muni, að hans sögn, verða kærðir persónulega á næstunni og ákærur snúist meðal annars um njósnir, skemmdarverk og refsiverða íhlutun í rekstur fyrirtækis.

    „Allir sem komu að þessu eiga í raunverulegum vandræðum, þar á meðal fyrirtækið sem stóð á bak við þetta. Þetta er upphafið að endurkomu okkar,“

    sagði Gerhard á fundinum og bætti við að baráttan myndi að lokum vinnast með gæðum leikjanna sjálfra og ástríðunni sem lögð væri í MindsEye.

    MindsEye

    Ritual Network hafnar hins vegar alfarið ásökununum. Í skriflegu svari til Insider Gaming segir fyrirtækið að það sé vettvangur fyrir stuðning við efnishöfunda og komi málinu ekki við. Þar kemur jafnframt fram að fyrirtækið hafi ekki fengið neinar upplýsingar um lögmætar aðgerðir gegn sér né sé meðvitað um nein gögn sem styðji fullyrðingar Gerhard.

    Talsmaður Build a Rocket Boy vildi ekki tjá sig beint um leka innanhússfundarins, en staðfesti þó að fyrirtækið teldi sig hafa orðið fyrir skipulagðri og illviljaðri herferð sem hefði það að markmiði að grafa undan trausti á MindsEye. Aðgerðir væru þegar hafnar í samvinnu við lögfræðinga fyrirtækisins.

    Þó að ásakanirnar séu alvarlegar og orðalagið á fundinum langt frá því að vera varfærnislegt, er ljóst að málið er aðeins rétt að byrja. Hvort hér sé um raunverulega samsærisherferð að ræða eða átök sem muni leysast fyrir dómstólum á eftir að koma í ljós. Þar til þá virðist Build a Rocket Boy ætla að halda sig við klassíska nördalausnina. Að láta leikinn tala.

    Myndir: Steam / MindsEye

    Build a Rocket Boy MindsEye Ritual Network
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.