Alþjóðlegi útgefandinn GRYPHLINE hefur tilkynnt að forskráning er nú hafin á PlayStation 5 fyrir væntanlegan leik Arknights: Endfield, nýjan rauntíma 3D RPG þar sem stefnumótandi átök, könnun og tæknileg uppbygging fléttast saman í eina heild.
Í tilkynningu frá GRYPHLINE kemur fram að leikurinn má nú finna í PlayStation Store þar sem aðdáendur geta bætt honum á óskalista sinn. Í tilefni þessa hefur GRYPHLINE birt nýtt, ítarlegra kynningarmyndband sem sýnir upptökur úr inngangskafla leiksins, teknar beint upp á PS5 í fyrsta sinn.
Arknights: Endfield er í þróun fyrir PlayStation 5, PC og farsíma og stefnt er að alþjóðlegri útgáfu snemma árs 2026.
Nýr kafli í heimi Arknights
Sögusvið leiksins er Talos-II, hættulegur heimur þar sem fyrstu landnemarnir hafa reist borgir innan gríðarhárra varnarmúra til að verjast hörmungum og ógnum. Handan borgarveggjanna liggja þó víðáttumiklar auðnir og órannsakaðar lendur sem bíða könnunar.
Þar knýja Originium-vélar áfram sjálfvirkar framleiðsluverksmiðjur, svokölluð AIC-kerfi (Automated Industry Complex), sem gera leikmönnum kleift að safna auðlindum, standast áskoranir og stjórnað af notandaum „operators“ að uppbyggingu betri framtíðar fyrir mannkynið.
Leikurinn blandar saman rauntíma bardögum, frjálsri könnun á opnum heimi og byggingu innviða sem tryggja framfarir og lifun.
Arknights: Endfield á rætur sínar í hinum gífurlega vinsæla Arknights, farsímaleiknum sem gerði tower defense og RPG að kombó sem virkaði fullkomlega. Endfield stígur skrefinu lengra og leiðir leikmenn inn í stærri heim, þar sem frelsi, könnun og hátækni mynda kjarnann í upplifuninni.
Forskráningin á PlayStation 5 markar mikilvægan áfanga í þróunarferlinu, en áhugasamir geta einnig fylgst með nánari upplýsingum á heimasíðu leiksins.
Myndir: aðsendar










