
Nexus mun loka litlu verslun sinni í Kringlunni föstudaginn 29. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem farið er yfir breytingarnar og starfsemina fram undan.
Nexus hefur verið rekið frá árinu 1992 og verið staðsett á ýmsum stöðum í gegnum tíðina. Fyrst við Hlemm, síðar á Hverfisgötu og í Nóatúni, áður en starfsemin byggðist upp í Glæsibæ þar sem spilasalurinn og samfélagið í kringum verslunina hefur styrkst undanfarin ár.
Fram kemur að lokun litlu búðarinnar í Kringlunni hafi engin áhrif á stórverslun Nexus í Glæsibæ. Þar segir að breytingin muni gera starfsfólki kleift að bjóða upp á enn betri þjónustu þar sem allur lager fyrirtækisins verði nú undir sama þaki.
Það eru ekki bara viðskiptavinir sem græða á breytingunni því Guðmundur Pedro getur nú loksins hætt að taka strætó upp í Kringlu til að sinna starfi sínu.
Engin rýmingarsala verður haldin í Kringlunni þar sem allar vörur flytjast yfir í Glæsibæ. Viðskiptavinir sem eiga gjafakort frá Kringlunni eru þó hvattir til að nýta síðustu dagana til að skipta þeim yfir í Nexus gjafabréf.
Í lok tilkynningarinnar þakkar Nexus viðskiptavinum fyrir árin í Kringlunni og segist hlakka til að taka áfram á móti fólki í Glæsibæ þar sem hjarta starfseminnar slær.
Mynd: Facebook / Nexus



