Author: Brolafsky
Brolafsky er vestfirskur tölvuleikjanörd á fertugsaldri sem hefur eytt meiri tíma í settings en hann kærir sig um að viðurkenna. Hann færir lesendum esports.is fréttir með léttum húmor og innsæi þar sem leikjaheimurinn er tekinn alvarlega, en þó ekki of alvarlega.
Rockstar Games tilkynntu í dag að Grand Theft Auto VI yrði fáanlegur í forsölu fyrir PS5 og Xbox Series X/S í næstu viku og að leikurinn kæmi út 19. nóvember. Fyrsti leikurinn í Grand Theft Auto-seríunni leit dagsins ljós 28. nóvember 1997 og hafa leikirnir notið gríðarlegra vinsælda allar götur síðan. Leikirnir í seríunni eru orðnir fjölmargir og í september verða liðin þrettán ár frá útgáfu Grand Theft Auto V. Þrátt fyrir aldur sinn selst leikurinn enn í tugum milljóna eintaka. Hann er jafnframt þriðji mest seldi tölvuleikur allra tíma, með yfir 260 milljónir seldra eintaka frá og með maí…
Leikja- og hýsingarþjónum tilraunaverkefnisins PUBG, leiknum PUBG: Blindspot, verður lokað fyrir fullt og allt á morgun, mánudaginn 30. mars. Leikurinn kom út 5. febrúar og hefur aðeins verið í Early Access í tæpa tvo mánuði. Sjá einnig: PUBG Studios kynnir nýjan skotleik, PUBG: Blindspot – Vídeó Leikjaframleiðandinn Sequoia Yang sagði frá því í tilkynningu á Steam að ARC-liðið (hópurinn sem stendur að baki leiksins) hafi verið að „kanna margar leiðir til að bæta upplifunina og færa leikinn áfram“ og komist að þeirri niðurstöðu að það „gæti ekki á sjálfbæran hátt veitt það upplifunarstig sem við ætluðum okkur að veita með…
