Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Ný íslensk vefverslun ætluð tölvuleikja- og nördasamfélaginu er að líta dagsins ljós á næstu dögum undir nafninu Pixelwear.is. Verkefnið er samfélagsdrifið framtak sem hefur það að markmiði að sameina ólík íslensk gaming-samfélög á einum vettvangi og gefa þeim tækifæri til að bjóða upp á sinn eigin varning án þess að þurfa að sjá um framleiðslu, lagerhald eða sölu. Hugmyndin að baki Pixelwear er einföld en metnaðarfull. Samfélög geta hannað og sett í sölu eigin vörur á vefnum og fá í staðinn hlutdeild í hagnaði. Með þessu verður til sameiginlegur markaður þar sem íslensk gaming-menning fær aukið vægi og sýnileika, á…

Lesa meira

OpenAI hefur staðfest að fyrirtækið hyggst leggja niður myndbandagerðarforritið Sora, sem hefur vakið mikla athygli fyrir að búa til stutt myndbönd með persónum úr þekktum sýndarheimum, þar á meðal úr leikjum og teiknimyndaseríum á borð við Pokémon og Dragon Ball. Ákvörðunin kemur á sama tíma og fyrirtækið beinir sjónum sínum í auknum mæli að hugbúnaðarþróun og viðskiptalausnum fyrir mögulegt hlutafjárútboð síðar á árinu. Það er Wall Street Journal sem greinir frá. We’re saying goodbye to the Sora app. To everyone who created with Sora, shared it, and built community around it: thank you. What you made with Sora mattered, and…

Lesa meira

GameTíví strákarnir fara í beinni útsendingu í kvöld, miðvikudaginn 25. mars 2026, þar sem þeir spila leikinn Dispatch. Um er að ræða skemmtilega ofurhetju „workplace comedy“ þar sem ákvarðanir skipta máli, en leikmenn stjórna hópi misheppnaðra hetja, senda þær í verkefni víðs vegar um borgina og reyna um leið að halda utan um skrifstofudrama, samskipti og eigin hetjuferðalag. Mynd: Steam / Dispatch

Lesa meira

Nýjar sögusagnir um að Sony hyggist setja á laggirnar sérstakan PC-launcher fyrir PlayStation leiki virðast ekki eiga við rök að styðjast. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá blaðamanninum Jason Schreier hjá Bloomberg er fyrirtækið ekki að vinna að slíkri lausn, þrátt fyrir að orðrómur þess efnis hafi verið á sveimi á undanförnum dögum. He responded to someone on reset era site. Someone started a false rumor about them doing ports again for some reason — Pyo 5️⃣ (@mrpyo1) March 20, 2026 Umræðan kviknaði á netinu þar sem fullyrt var að uppfærsla á PlayStation gæti leitt til þess að Sony myndi gefa út…

Lesa meira

Íslenska landsliðið í flokki heldri spilara vann gullið um síðustu helgi í tveggja daga Norðurlandamóti á Internetinu í sveitakeppni. Árangur liðsins er sérlega glæsilegur því miklar briddskempur skipuðu að jafnaði lið hinna Norðurlandanna. Fyrir Íslands hönd spiluðu Þorlákur Jónsson, Einar Gudjohnsen Ragnar Magnússon, Páll Valdimarsson, Sævar Þorbjörnsson, Guðmundur Sv. Hermannsson og Björn Eysteinssson. Einar Guðjohnsen segir um árangurinn: „Það munar öllu að vera í liði með geðgóðum spilafélögum sem taka spilin nógu alvarlega, en ekki of alvarlega! Liðið spilaði vel í heild, sérstaklega í sögnum.“ Geta má þess að margir tugir impa féllu Íslendinganna megin í vel melduðum slemmuspilum „seníoranna“.…

Lesa meira

Tölvuleikurinn Minecraft er á leiðinni í nýjan og óvæntan farveg þegar fyrsta fullmótaða skemmtigarðssvæði heimsins, byggt á leiknum, opnar dyr sínar árið 2027. Verkefnið ber nafnið Minecraft World og verður staðsett í Chessington World of Adventures. Að baki verkefninu standa Merlin Entertainments og Mojang Studios, sem hafa unnið náið saman að þróun svæðisins. Um er að ræða fjárfestingu upp á um 50 milljónir punda, jafnvirði um 8,5 til 9 milljarða íslenskra króna, og er markmiðið að færa vinsælasta tölvuleik allra tíma úr stafrænum heimi yfir í raunveruleikann. Minecraft World mun byggja á þekktustu þáttum leiksins, þar á meðal verum og…

Lesa meira

Það er nú staðfest að BlizzCon snýr aftur árið 2026 eftir nokkurt hlé, en viðburðurinn hefur ekki verið haldinn árlega undanfarin ár og féll meðal annars niður á tímabili. Sjá einnig: BlizzCon snýr aftur árið 2026 eftir tveggja ára hlé Með endurkomunni er lögð aukin áhersla á rafíþróttir, en á dagskrá verða stór mót í leikjum á borð við World of Warcraft og Overwatch, þar sem fremstu leikmenn heims munu keppa til úrslita. Viðburðurinn fer fram dagana 12. til 13. september í ráðstefnuhöllinni í Anaheim í Kaliforníu. Þar mun Blizzard leggja aukna áherslu á keppnishlið leikja sinna og bjóða upp…

Lesa meira

Leikurinn Starfield frá Bethesda Game Studios virðist loks vera á leiðinni á PlayStation, samkvæmt nýjustu fréttum. Um er að ræða stórt skref fyrir leikinn sem hingað til hefur verið bundinn við Xbox og PC leikjakerfin. Útgáfudagsetning liggur fyrir, en leikurinn kemur út 7. apríl og mun þá veita fleiri leikmönnum tækifæri til að upplifa þennan víðfeðma geimævintýri á nýjum vettvangi.  Þessi þróun endurspeglar einnig breytta nálgun Microsoft á útgáfu leikja sinna síðustu misseri. Nánar er fjallað um málið og það sem gæti verið fram undan hjá PSfrettir.com. https://www.youtube.com/watch?v=xUS6igFziPc Myndir: bethesda.net / Starfield

Lesa meira

Undirbúningur fyrir eitt stærsta LAN-mót Íslands, HRinginn, er nú í fullum gangi. Mótið fer fram í Háskóla Reykjavíkur dagana 7. til 9. ágúst og skráning hefst 1. apríl næstkomandi á vefnum hringurinn.net. Á bakvið uppsetningu mótsins standa meðal annars vinirnir Orri og Hilmar, rafiðnfræðingar sem starfa við rafvirkjun og gegna lykilhlutverki í framkvæmd viðburðarins, ásamt öflugum hópi fólks með sérþekkingu á sínu sviði sem leggur sitt af mörkum til að tryggja að LAN-mót af þessari stærðargráðu takist sem best. Fyrstu skrefin í skipulagningu Þeir hafa undanfarin ár komið að skipulagningu og undirbúningi mótsins og segja að aðkoma þeirra hafi byrjað…

Lesa meira

Vormót Apex Legends á vegum GameTíví fer fram laugardaginn 21. mars klukkan 14:00 og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu. Keppt verður eftir svokölluðu 60 stiga match point fyrirkomulagi, sem ætti að tryggja spennandi lokasprett þar sem sigurvegari fæst ekki krýndur fyrr en lið nær bæði stigamarkinu og sigrar leik. Skráning er í fullum gangi og er pláss fyrir lið á meðan sæti eru laus. Mótið lofar góðri stemningu og hörkuviðureignum þegar bestu lið landsins mætast til leiks. Mynd: Steam / Apex Legends

Lesa meira