Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Tölvuleikjaútgefandinn Silver Lining Interactive hefur tilkynnt samstarf við þróunarteymið Psychic Software um að færa gotneska leikinn The Necromancer’s Tale á console leikjatölvur. Leikurinn, sem kom upphaflega út á PC, er væntanlegur á PlayStation 5, Xbox Series X/S og Nintendo Switch 2. Leikurinn hefur vakið athygli fyrir dökka og sögudrifna nálgun þar sem ákvarðanir leikmanna hafa bein áhrif á framvindu sögunnar. Nú þegar er hægt að setja leikinn á óskalista á PlayStation 5 og Xbox Series X/S, en skráning fyrir Nintendo Switch 2 verður tilkynnnt síðar. Í The Necromancer’s Tale stíga leikmenn í spor aðalsmanns á 18. öld sem dregst inn…

Lesa meira

StarCraft hátíð var haldin um helgina í rafíþróttamiðstöðinni Next Level Gaming í Egilshöll þar sem tugir aðdáenda klassíska herkænskuleiksins komu saman til að spila, keppa og hitta gamla spilafélaga. Viðburðurinn var haldinn í tilefni þess að 28 ár eru liðin frá útgáfu upprunalega leiksins og markaði jafnframt skemmtilegan endurfund margra sem hafa fylgt seríunni í gegnum árin. Krýndir Íslandsmeistarar í tveimur leikjum Í mótinu var keppt í bæði StarCraft og StarCraft II þar sem sigurvegarar hlutu verðlaunabikar og þar með formlegan titil Íslandsmeistara í hvorum leik. Bjarni Ólafsson, sem spilar undir nafninu Steamy, sigraði í StarCraft en Þórgeir Atli, betur…

Lesa meira

Tvær briddssveitir eru enn taplausar í Úrvalsdeildinni, sem fer fram í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans undir hatti rafíþrótta. Sveit Grant Thornton er önnur þeirra, hin er sveit Gunnlaugs Sævarssonar. Margar sveitir hafa fallið út síðustu vikur eftir tvö töp, en hver sveit má tapa einu sinni án þess að til útsláttar komi. Sveitirnar sem enn halda velli eru auk tveggja fyrrnefndu: Búið er að draga í næstu umferð í Úrvalsdeildinni. Seniorar sem spila næsta sjónvarpsleik klukkan 19 á Símanum gegn Málningu. Sveit Gabríels Gíslasonar leikur gegn Team Akureyri. Doktorinn á bardaga við Færeyjar, sem er skipað bestu mönnum vina…

Lesa meira

Leikstjóri Resident Evil Requiem, Koshi Nakanishi, hefur ákveðið að taka sér hlé frá samfélagsmiðlum eftir að umræður aðdáenda um ástarlíf persónunnar Leon S. Kennedy fóru úr böndunum. Þetta kemur fram í umfjöllun á Kotaku.com. Í lok Resident Evil Requiem sést Leon setja upp giftingarhring, sem gefur til kynna að hann hafi gengið í hjónaband einhvern tímann eftir atburði Resident Evil 6. Leikurinn upplýsir þó ekki hver eiginkonan er, sem hefur kveikt miklar umræður meðal aðdáenda. Sumir telja að þar sé um að ræða Ada Wong, en aðrir benda á Claire Redfield sem líklegan kost. I saw so many people messaging…

Lesa meira

Vormót í tölvuleiknum Apex Legends fer fram laugardaginn 21. mars næstkomandi og hefst keppni klukkan 14.00. Að þessu sinni hafa mótshaldarar ákveðið að hafa svokallað 60 stiga match point kerfi í keppninni. Slíkt fyrirkomulag hefur notið vinsælda í stærri mótum leiksins þar sem lið þurfa að ná ákveðnum stigafjölda áður en þau geta tryggt sér sigur með lokasigri í leik. Fyrir vikið skapast oft mikil spenna þegar mótið nálgast lokastigin. Eins og áður segir, þá fer mótið fram laugardaginn 21. mars klukkan 14.00 og verður streymt í beinni útsendingu á Twitch rásinni GameTíví, þar sem áhorfendur geta fylgst með helstu…

Lesa meira

Rafíþróttasamband Íslands hefur verið skráð sem fjölmiðlaveita hjá Fjölmiðlanefnd og miðillinn „Rafíþróttir“ jafnframt skráður sem fjölmiðill samkvæmt lögum um fjölmiðla nr. 38/2011. Um er að ræða mikilvæg tímamót fyrir rafíþróttir á Íslandi, þar sem starfsemi sambandsins fær nú formlega stöðu innan íslensks fjölmiðlaumhverfis. Samkvæmt tilkynningu nefndarinnar liggja upplýsingar sem skráningin byggir á aðgengilegar á vef Fjölmiðlanefndar í samræmi við 21. grein fjölmiðlalaganna. Skráningin staðfestir að dagskrárgerð og miðlun efnis á vegum sambandsins falli undir skilgreiningu fjölmiðlaveitu og lúti þar með þeim reglum og skyldum sem lögin kveða á um. Í tengslum við skráninguna hefur Rafíþróttasamband Íslands sett fram ítarlega dagskrárstefnu…

Lesa meira

Gestir á EVE Fanfest 2026 fá óvenjulegt tækifæri til að leggja sitt af mörkum til verkefnisins Capsuleer Edda, þar sem saga EVE Online verður fest á blað í handskrifuðu handriti. Hugmyndin er að varðveita sögu leikjasamfélagsins í áþreifanlegu formi. Í meira en tvo áratugi hafa leikmenn mótað heiminn New Eden með bandalögum, átökum og samvinnu. Með þessu verkefni á að safna brotum úr þeirri sögu og færa hana yfir í handrit sem getur varðveist til lengri tíma. Í tilkynningu frá EVE Online kemur fram að á Fanfest verður gestum boðið að gefa einn blóðdropa sem verður blandaður í sérstakt blek.…

Lesa meira

Íslenski rafíþróttaspilarinn Jökull „Kaldi“ Jóhannsson rifjar upp upphaf sitt í StarCraft, samkeppnina á Íslandi og leiðina inn í atvinnumennsku í nýju viðtali sem skipuleggjendur StarCraft-hátíðarinnar birtu á dögunum í aðdraganda viðburðarins sem fram fer 7. mars. Jökull var einn þekktasti íslenski StarCraft II spilari síns tíma og keppti síðar einnig sem atvinnumaður í leiknum Hearthstone. Í viðtalinu segir hann að áhuginn á herkænskuleikjum hafi kviknað mjög snemma. „Ég hef spilað RTS frá sjö ára aldri. Ég man vel eftir fyrsta leiknum, Dune 2000 sem kom út 1998,“ segir Jökull. Hann bætir við að leiðin inn í StarCraft hafi þó byrjað…

Lesa meira

Fjórði þáttur í Valheim-þáttaröð íslenska spilarans CageConnor er kominn út á YouTube. Rásin hans er með yfir 2000 áskrifendur og hefur hann síðustu misseri birt reglulega efni úr þessari modduðu útgáfu af leiknum. Þátturinn ber heitið Winter Froze the Entire Ocean og markar ákveðin tímamót í seríunni. Veturinn er genginn í garð í leiknum, hafið frýs og ný svæði verða aðgengileg. Með því opnast ný tækifæri til könnunar, auk þess sem spilarinn rekst á dularfullan kaupmann og öflugan búnað. Serían er byggð á breyttri útgáfu af Valheim þar sem ýmis viðbótarefni hafa verið sett inn. Þar má finna ný svæði,…

Lesa meira

Nýverið fór fram Rally keppni í aksturshermi þar sem keppt var á Djúpavatnsleið, en þar með hefur fyrsta íslenska sérleiðin í Rally formlega ratað inn í hermi. Verkefnið er á vegum GT akademíunnar sem hefur undanfarin misseri unnið að þróun leiðarinnar í samstarfi við fjölda öflugra aðila. Áhugi var mikill og yfir fjörutíu keppendur skráðu sig til leiks. Stemningin var í takt við það sem gerist og gengur í hefðbundnu rallýi, spennan þétt og hver sekúnda taldi. Það var Gunnar Karl Jóhannesson sem reyndist hlutskarpastur að lokum og hreppti titilinn Djúpavatnsmeistari 2026 eftir öruggan og fumlausan akstur. Með tilkomu Djúpavatnsleiðar…

Lesa meira