Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Kingdom Come: Deliverance II heldur áfram sögu Henrys í lifandi og raunsæjum heimi miðalda. Með grípandi söguþræði, fjölbreyttri spilun og sögulegum smáatriðum er leikurinn heillandi ævintýri sem býður upp á yfir 100 klukkustundir af upplifun. Í leikjarýni á nordnordursins.is segir að þrátt fyrir nokkra galla er þetta metnaðarfullt framhald sem leikjaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Ítarlega leikjarýni um Kingdom Come: Deliverance II má finna á Nörd Norðursins. Smelltu hér til að lesa hana í heild sinni. Mynd: kingdomcomerpg.com
Esports World Cup 2024, sem haldin var í Riyadh, Sádi-Arabíu, var stærsti viðburður sinnar tegundar með 22 rafíþróttatitlum og 60 milljón dala verðlaunafé. Þrátt fyrir umfang og metnað komu upp ásakanir um ógreidd laun til leikmanna, starfsfólks ofl. Samkvæmt fréttum hafa margir leikmenn og starfsfólk lýst yfir áhyggjum vegna ógreiddra eða ófullnægjandi greiðslna, sem spanna allt frá nokkrum þúsundum upp í sex stafa upphæðir. Greiðsluferlið virtist vera ójafnt, þar sem þekktari leikir og lið fengu greiðslur fyrr, á meðan smærri samtök biðu enn. Leikir eins og Apex Legends, Mobile Legends Bang Bang, Tekken og PUBG Mobile eru meðal þeirra sem…
Jeff Strain og eiginkona hans, Annie Strain, eigendur Prytania Media, hafa höfðað mál gegn NetEase og sakað fyrirtækið um ærumeiðingar, ósanngjarna viðskiptahætti og truflun á viðskiptasamböndum. Þau halda því fram að þessar aðgerðir hafi leitt til hruns fyrirtækisins og dótturfyrirtækja þess: Crop Circle Games, Possibility Space, Fang & Claw og Dawon Entertainment, sem öll lokuðu árið 2024. Polygon.com greindi fyrst frá málinu. NetEase átti 25% hlut í Crop Circle Games, en Prytania Media hélt 75% hlut. Samkvæmt málsskjölum segja Strain-hjónin að NetEase hafi dreift röngum og ærumeiðandi fullyrðingum um fjármálamisferli innan fyrirtækisins, sem leiddi til þess að fjárfestar drógu sig…
Ubisoft hefur gefið út nýja CGI-stiklu fyrir væntanlegan leik sinn, Assassin’s Creed Shadows, sem kemur út á Steam þann 20. mars. Sjá einnig: Assassin’s Creed Shadows ritskoðað í Japan: Aflimun bönnuð Stiklan gefur leikmönnum innsýn í söguhetjurnar Naoe og Yasuke, sem feta sig í gegnum stórbrotið umhverfi miðaldajapans í sögulegu hasarævintýri. https://www.youtube.com/watch?v=A7IaCLM8GqU Leikurinn er nú fáanlegur í forpöntun á Steam. Mynd: assassinscreed.com
Leikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vekur mikla athygli í leikjaheiminum og lofar bæði einstöku útliti og krefjandi spilun. Í nýrri leikjarýni frá Aaron Bayne hjá Push Square er farið yfir það hvernig leikurinn kemur til með að blása fersku lífi í tölvuleikjasamfélagið með einstakri blöndu af sjónrænum áhrifum og taktískri bardagaupplifun. Bayne lýsir leiknum sem „stórkostlegum í útliti og ótrúlega ferskum“ á PlayStation 5. Með áhrifamikilli grafík og hraðri spilun virðist Clair Obscur: Expedition 33 vera leikur sem mun höfða til aðdáenda RPG- og taktískra bardagaleikja. Leikurinn tekst á við nýjar hugmyndir í taktískum bardögum þar sem leikmenn þurfa að…
Vorið er komið, sólin skín, og fremstu Team Fortress 2-lið Evrópu eru tilbúin að etja kappi eftir langan vetrardvala. Nú um helgina 14. – 16. mars fer fram spennandi keppni í BaseStack í Łódź, Póllandi, þar sem fjórtán af öflugustu liðunum í Evrópu etja kappi um meistaratitilinn og €1.200 verðlaunafé eða um það bil 175.000 íslenskum krónum. Leikirnir hefjast daglega kl. 14:00 CET (9:00 EDT | 6:00 PDT) eða klukkan 13:00 á íslenskum tíma og verða í beinni útsendingu á Twitch-rás EssentialsTF. Aðdáendur Team Fortress 2 fá hér einstakt tækifæri til að fylgjast með háspennuviðureignum þar sem sterkustu lið álfunnar…
Epic Games, framleiðandi hins geysivinsæla tölvuleiks Fortnite, stendur nú frammi fyrir nýrri hópmálsókn þar sem fyrirtækið er sakað um að hafa notað „villandi“ markaðssetningu í Item Shop leikjaversluninni. Tvær fjölskyldur hafa höfðað mál gegn Epic Games og halda því fram að fyrirtækið hafi meðvitað beitt ósanngjörnum viðskiptaháttum til að fá börn til að eyða peningum í stafrænar vörur, að því er fram kemur á fréttavef New York Times. Villandi niðurteljari Megináhersla málsóknarinnar er á niðurteljarana í Item Shop, sem sýndu að ákveðin tilboð myndu renna út eftir skamman tíma. Hins vegar, að sögn kærenda, komu sömu vörur oft aftur í…
Blizzard Entertainment hefur tilkynnt að árlega ráðstefnan BlizzCon muni snúa aftur árið 2026 eftir að hafa verið felld niður bæði 2024 og 2025. Viðburðurinn mun fara fram í Anaheim ráðstefnumiðstöðinni í Kaliforníu dagana 12. og 13. september 2026. Ákvörðun um að sleppa BlizzCon 2025 Ákvörðunin um að sleppa BlizzCon árið 2025 kemur í kjölfar umfangsmikilla breytinga innan Blizzard, þar sem Microsoft keypti móðurfélagið Activision Blizzard. Fyrirtækið hefur verið að endurskipuleggja rekstur sinn, en samkvæmt tilkynningu er markmiðið að tryggja enn betri upplifun fyrir aðdáendur þegar ráðstefnan snýr aftur árið 2026. „BlizzCon er mikilvægur hluti af samfélaginu okkar og við viljum…
Næsta PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) online mót fer fram sunnudaginn 6. apríl, og verður það haldið samkvæmt gamla keppnisfyrirkomulaginu. Mótið samanstendur af sex leikjum, með hámark 18 lið, þar sem fyrstir koma, fyrstir fá. Skráning á mótið opnar sunnudaginn 16. mars næstkomandi – tryggðu þér sæti í tæka tíð! Scrim æfingamót 23. mars – Frí þátttaka Áður en mótið sjálft hefst gefst spilurum tækifæri til að skerpa á leikforminu í Scrim æfingamótinu, sem fer fram 23. mars. Frítt að taka þátt. Frjáls skráning. Skjal fyrir skráningu hér. Einstaklingar sem eru án liðs eru sérstaklega hvattir til að skrá sig á Mix-listann,…
Einn stærsti samfélagsviðburður ársins fyrir EVE Online spilara, EVE Fanfest 2025, er handan við hornið. Þar munu leikmenn alls staðar að úr heiminum koma saman í Reykjavík til að fagna leiknum sem þeir kalla sinn annan heim. Meðal hápunkta hátíðarinnar eru fyrirlestrar frá spilurum sjálfum, þar sem þeir fá tækifæri til að deila innsýn sinni og reynslu af New Eden. Leikmenn segja sögurnar sem móta New Eden Fyrirlesarar á EVE Fanfest eru valdir úr hópi áhugasamra spilara sem búa yfir sérfræðiþekkingu og dýpri skilningi á hinum margslungna leikjaheimi EVE Online. Þeir munu ræða ýmis málefni, allt frá stórvelda-pólitík og bardagastefnum…
