Leikjafyrirtækið MintRocket hefur sent út tilkynningu birt nýjar upplýsingar um Bancho The Chef, sjálfstæðan leik að vinsæla leiknum Dave the Diver. Leikurinn var kynntur óvænt á PlayStation State of Play viðburðinum þann 2. júní s.l.
Bancho The Chef segir frá upphafi ferils matreiðslumannsins Bancho og gerist nítján árum fyrir atburði Dave the Diver. Þar fylgja spilarar honum á ferðalagi um Asíu þar sem hann lærir sjávarréttamatreiðslu af reyndum meistarakokkum og starfar á veitingastöðum í ólíkum borgum.
Auk þess að elda og þjóna viðskiptavinum þarf Bancho að kanna umhverfið, afla hráefna og tileinka sér nýja matreiðslustíla. Á hverjum stað bíða hans einnig sérstakar áskoranir sem reyna á kunnáttu hans áður en hann heldur áfram til næsta áfangastaðar.
MintRocket hefur staðfest að leikurinn komi út fyrir PlayStation 5 og PC. Þá verður stuðningur við DualSense stýringu PlayStation 5 nýttur til að láta spilara upplifa matreiðsluna með snertiviðbrögðum sem eiga að gera matreiðsluna raunverulegri.
Útgáfudagur leiksins hefur ekki enn verið tilkynntur.
Myndir: aðsendar







