Battlefield 6 hefur slegið rækilega í gegn og sett nýtt met fyrir seríuna. Að sögn Electronic Arts hefur leikurinn selst í yfir sjö milljónum eintaka á fyrstu þremur dögunum frá útgáfu, þann 10. október 2025. Aldrei áður hefur Battlefield-leikur náð jafn hraðri útbreiðslu, og segja forsvarsmenn EA að þetta sé aðeins upphafið á stærra ævintýri í sögu seríunnar.
Samkvæmt tölum frá útgefandanum voru spilaðir rúmlega 172 milljónir leikja á netinu fyrstu þrjá dagana, og áhorf á Battlefield 6 efni fór yfir 15 milljón klukkustundir á streymisveitum. Þetta er met bæði í virkni og sýnileika, og setur leikinn í hóp mest spiluðu titla á Steam strax við útgáfu.
Frá falli til frægðar
Eftir misheppnaða útgáfu Battlefield 2042 árið 2021 var ljóst að DICE og EA þurftu að endurheimta traust leikjaspilara. Með Battlefield 6 hefur þeim tekist að endurvekja gamla orrustuandann sem einkenndi gullöld seríunnar. Leikurinn er sagður sameina klassíska leikstefnu, stórbrotin vígvöll og tæknilega útfærslu sem nær jafnvægi milli raunsæis og leikrænnar keyrslu.
EA segir í yfirlýsingu að hlustað hafi verið á samfélagið frá fyrsta degi þróunar.
„Við ákváðum að byrja á auðu blaði, taka við gagnrýni og endurhugsa hvað Battlefield á að vera,“
segir í tilkynningu frá þróunarteyminu.
Það sem virðist hafa gert gæfumuninn er að Battlefield 6 fann aftur rótina sína. Spilarar hafa hrósað endurkomu stórra korta, farartækja og teamplay sem hafa alltaf verið hjartað í seríunni. Eftir margra ára leit fann DICE aftur taktinn sem gerði Battlefield að því sem það er, hernaðarlegri upplifun sem sameinar taktík, kaos og sanna „adrenalínsprengingu“.
Markaðssetningin spilaði einnig stórt hlutverk. Opna beta-útgáfan, sem fór fram í september, vakti mikla eftirvæntingu og gaf leikmönnum tilfinningu fyrir því að EA væri loksins að hlusta. Það var ekki lengur talað niður til samfélagsins heldur með því, og sú nálgun skilaði sér í trúverðugleika sem hafði vantað um árabil.
Sterk netvirkni hefur líka gert sitt. Með yfir 700 þúsund á vígvellinum á sama andartaki á Steam við útgáfu náði leikurinn beint inn á topp þrjú mest spiluðu leikina á Steam. Það er sjaldgæft fyrir nýjan titil, hvað þá stríðsleik, og sýnir að áhuginn er raunverulegur og ekki aðeins drifinn áfram af auglýsingum.
Síðast en ekki síst hefur samkeppnin við Call of Duty kveikt nýjan neista. Þrátt fyrir að Black Ops 6 hafi fengið mikla umfjöllun, hefur Battlefield 6 tekist að stimpla sig inn sem raunhæfan keppinaut með glæsilega tækni, nýja leikjahætti og þá séríslensku „óreiðu í skipulagi“ sem aðdáendur hafa beðið eftir.
Gameplay
Þótt upphafið sé glæsilegt, eru margir varkárir. EA þarf nú að sýna að nýja brumið sé ekki bara tímabundið hype heldur raunveruleg endurreisn. EA hefur lofað að fyrsta tímabil (Season 1) hefjist 28. október, með nýjum kortum, vopnum og áskorunum. Þar liggur lykillinn að því hvort Battlefield 6 verði aðeins skyndileg uppsveifla eða raunverulegur endurreisnartitill.
Sumir gagnrýnendur hafa nefnt að herferðin mætti vera dýpri og kortagerð ekki jafn fjölbreytt og áður, en almennur tónn í samfélaginu er jákvæður. Fyrstu merki benda til þess að DICE hafi loksins náð jafnvægi milli metnaðar og spilunar.
Battlefield 6 hefur ekki bara selt í milljónum eintaka heldur einnig kveikt líf aftur í leikjaheimi sem margir héldu að væri runninn sitt skeið.
Sjö milljón eintaka á þremur dögum, 172 milljónir leikja og 15 milljónir klukkustunda í áhorfi segja sitt. Að lokum segir í tilkynningu að þetta markar ekki endalok, heldur nýtt upphaf fyrir Battlefield-seríuna.
Myndir: ea.com





