World of Tanks hefur sett jólatankana í gang og hefir hátíðartörnina með óvæntri ráðningu. Leikarinn Benedict Cumberbatch hefur verið skipaður „Holiday Ambassador“ fyrir Holiday Ops 2026 sem fer fram frá 5. desember 2025 til 12. janúar 2026.
Í stað hefðbundinnar hátíðar þar sem tankar fá ný skins og jólatré glitra ofan á skotgröfum ákveður Wargaming að stíga út fyrir normið. Í kynningarmyndbandi, sem sjá má hér að neðan, fer Benedict Cumberbatch með hlutverk lúnkins og dálítið sérviskulegs geðlæknis sem reynir að hjálpa feimnum karakter, Sebastian, að stíga út úr skelinni og takast á við eigin óöryggi. Útkoman er bæði fyndin og sérkennileg og á skjön við hefðbundinn stríðsblæ leiksins, en einmitt það virðist hafa gripið athygli leikmanna.
Í tilkynningu frá WoT kemur fram að hátíðarviðburðurinn stendur áfram á sínum trausta grunni. Spilarar fá sérstök missions, tímabundnar áskoranir, hátíðargjafir og nýjar viðurkenningar. Að þessu sinni er einnig hægt að fá Benedict Cumberbatch sjálfan sem tankstjóra með upprunalegri rödd og karakter sem var unninn sérstaklega fyrir leikinn.
Athyglisvert verður að sjá hvernig þessi óvenjulega blanda af húmor, dramatík og léttum sálfræðiblæ fellur að WoT umhverfinu. Kannski er þetta vísbending um að Wargaming sé að reyna að endurnýja hátíðartóninn og færa leiknum meira líf, persónuleika og smá jólastemningu, þótt tankarnir séu áfram jafn þungar hetjur og áður.
Mynd: aðsend / worldoftanks.eu




