HELLRAISER: Revival var formlega kynntur til leiks um síðastliðna helgi, en um er að ræða nýjan sálrænan hrylling byggðan á hinni goðsagnakenndu kvikmynd Clive Barker. Leikurinn kemur út á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC.
Í frétt á psfrettir.com kemur fram að þróun standa Stúdíóið Boss Team Games og útgefandinn Saber Interactive. Sögusviðið er myrk og táknræn veröld Hellraiser-myndanna, þar sem Aidan glímir við fortíð sína og viðurstyggilegar verur þegar Lemarchand-teningurinn er opnaður.
Leikurinn er væntanlegur árið 2025, en útgáfudagur hefur ekki verið tilkynntur.
Ekki fyrir viðkvæma
Myndbandið sem fylgir tilkynningunni inniheldur óhugnað sem getur haft áhrif á viðkvæma áhorfendur.
Mynd: facebook / Clive Barker’s Hellraiser: Revival




