Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Davíð tryggði sér fyrsta sigurinn á Watkins Glen – Jón Þór og Óliver Nói fylgdu fast á eftir
    Gran Turismo
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Davíð tryggði sér fyrsta sigurinn á Watkins Glen – Jón Þór og Óliver Nói fylgdu fast á eftir

    Chef-Jack19.09.2025Uppfært04.11.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Davíð tryggði sér fyrsta sigurinn á Watkins Glen – Jón Þór og Óliver Nói fylgdu fast á eftir

    Það var sannkölluð hátíð fyrir kappakstursáhugafólk þegar önnur umferð 1. Deildar GTSI Vetrartímabilsins fór fram á hinni goðsagnakenndu Watkins Glen braut í Gran Turismo. Keppnin bauð upp á bæði taktíska baráttu og dramatískar uppákomur, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu metrunum.

    Davíð Örn Adamsson hóf keppnina úr ráspól eftir góða tímatöku og nýtti sér forskotið til fulls. Hann hélt haus, stýrði hraðanum af nákvæmni og tryggði sér að lokum sinn fyrsta sigur í 1. deildinni.

    Gran Turismo
    Mynd: Gran Turismo Samfélagið / Magnús Jón Árnason

    Jón Þór Ásgrímsson átti erfitt með að finna taktinn í tímatökunni og þurfti því að byrja aftar en hann ætlaði sér. Það breytti þó litlu, því hann sýndi líklega mestan hraða allra á brautinni. Jón Þór ruddi sér leið í toppbaráttuna, tók þátt í ófáum átökum og tryggði sér annað sætið eftir glæsilegan framúrakstur á Óliver Nóa í hinni frægu Busstop beygju, atriði sem áhorfendur fá aldrei leið á að horfa á aftur í útsendingunni (sjá hér að neðan).

    Davíð tryggði sér fyrsta sigurinn á Watkins Glen – Jón Þór og Óliver Nói fylgdu fast á eftir

    Óliver Nói Auðunsson reyndist svo sannarlega nýr „varnarmálaráðherra“ GTSI samfélagsins þegar kom að lokakaflanum. Hann lokaði öllum glufum sem hægt var, hélt af sér stöðugri pressu, en varð að lokum að láta Jón Þór framhjá.  Þriðja sætið var engu að síður stórsigur fyrir hann sjálfan, enda um fyrsta pall hans í 1. deild að ræða.

    Hilmar Már Gunnarsson endaði í fjórða sæti en stóð þó upp úr með hraðasta hring kvöldsins á Medium-dekkjum. Hann var jafnframt kosinn DOTD (Driver of the Day) í spjallinu á YouTube-streyminu, sem undirstrikar hversu sterkt kvöldið var hjá honum. Í fimmta sæti skilaði sér svo Ari Lyngdal, þrátt fyrir að hafa orðið fyrir skemmdum eftir að hann, Jón Þór og Óliver tóku sig til og reyndu 3-wide inn í aðra beygju.

    Davíð tryggði sér fyrsta sigurinn á Watkins Glen – Jón Þór og Óliver Nói fylgdu fast á eftir

    Stigakeppnin hitnar

    Sigur Davíðs þýðir að forskot Jóns Þórs í stigakeppninni hefur nú minnkað niður í aðeins eitt stig. Þar fyrir aftan hefur Óliver Nói stokkið upp í þriðja sætið, ellefu stigum frá toppnum, að hluta til þar sem Jón Ægir mætti ekki til leiks. Hilmar, Ari Lyngdal og Hilli D bættu allir stöðu sína og færðust þrjú sæti upp listann.

    Í liðakeppninni tók Kaldi Racing Team yfir toppsætið og eru nú sex stigum á undan Be Sick Racing Team. Arc-Tic Retro Rewind Racing sitja enn í þriðja sæti, þó með nokkuð langt bil í toppbaráttuna.

    Kærumál afgreitt

    Eitt kærumál barst eftir keppnina þar sem Jón Þór lagði fram kvörtun á hendur Ara Lyngdal vegna átaka á nokkrum hringjum. Dómnefndin, skipuð Magga og Dodda, úrskurðaði að um hefðbundin kappakstursatvik væri að ræða. Engar refsingar voru veittar, en ökumönnum var áréttað að skilja eftir pláss og sýna hvert öðru gagnkvæma virðingu á brautinni.

    Úrslitin á Watkins Glen:

    1. Davíð Örn Adamsson
    2. Jón Þór Ásgrímsson
    3. Óliver Nói Auðunsson

    Hraðasti hringur: Hilmar Már Gunnarsson
    Ráspóll: Davíð Örn Adamsson

    Frétt byggð á keppnispistli Gunnars Ágústssonar.

    Staðan hefur verið uppfærð á vefsíðu Gran Turismo Samfélagsins hér.

    Horfðu á keppnina hér:

    Myndir af stigatöflum: facebook / Gran Turismo Samfélagið

    Davíð Örn Adamsson - Gran Turismo GameTíví Gran Turismo Sport Íslenska Gran Turismo samfélagið Íslenskt efni Jón Þór Ásgrímsson - Gran Turismo Óliver Nói Auðunsson - Gran Turismo
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.