DUO mót fer fram í PUBG: Battlegrounds föstudaginn 20. febrúar klukkan 20:00. Leikið verður í FPP samkvæmt esports reglum.
Skráningargjald er 1.000 krónur á lið og rennur það óskipt beint í vinningspottinn. Fyrsta sæti fær 50 prósent, annað sæti 30 prósent og þriðja sæti 20 prósent af heildarupphæðinni.
Mótið er opið bæði reyndum liðum og nýjum spilurum sem vilja reyna sig í skipulögðu keppnisumhverfi. Skráning fer fram hér og nánari upplýsingar má finna í Facebook hópnum Íslenska PUBG samfélagið.




