
Sænska CS stjarnan Tilde Byström, betur þekkt sem 7licious, vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum nú á dögunum þegar hún gaf í skyn óvænta og jafnvel dramatíska breytingu á eigin ferli. Hún hefur keppt í tíu ár í Counter-Strike og á að baki farsælan feril í CS:GO með liðum á borð við Ninjas in Pyjamas og Evil Geniuses. Á þessu ári hóf hún svo keppni í CS2 með bandaríska félaginu Ghost Gaming þar sem hún spilar enn í dag.
Hún setti inn mynd á samfélagsmiðla sem virðist sýna hana að störfum á kaffihúsi og skrifaði með:
„Eftir tíu ár í esports er ég orðin samlokumeistari.“
After 10 years in esports, I’m officially a sandwich maker 👍 pic.twitter.com/G1TykLX6JS
— Tilde Byström (@7liciousCSGO) November 19, 2025
Ekki liggur fyrir hvort um sé að ræða nýtt aukastarf eða einungis létta kaldhæðni en myndin sló rækilega í gegn. Um leið og þessi frétt er skrifuð hefur færslan fengið rúmlega 320 þúsund like og yfir fjögur þúsund athugasemdir.
Félagar hennar í esports hafa tekið þessu með húmor. Ksenia Klyuenkova, betur þekkt sem vilga og fyrirliði Ninjas in Pyjamas Impact, svaraði með orðunum:
„Loksins kona að sinna starfi sínu.“
Amount of likes under the pic and the comment says a lot about our society and is very concerning 🤦♀️ https://t.co/uhFJY965RD
— vilga (@vilgaCS) November 19, 2025
Athugasemdin vakti þó einnig óæskilega athygli og dró til sín þann hluta samfélagsmiðilsins sem leikmenn eru orðnir alltof vanir að takast á við. Vilga bætti síðar við:
„Fjöldi like og viðbragða við þessu segir margt um stöðu samfélagsins og er mjög áhyggjuefni.“

Atvikið varpar ljósi á breiðari áskoranir kvenna í esports. Á síðasta mánuði var tilkynnt að ESL Impact mótaraðirnar í CS2 yrðu settar í ótímabundið hlé eftir lokaumferð tímabils átta. Skipuleggjendur sögðu núverandi rekstrarlíkan ekki lengur rekstrarlega raunhæft. Þetta var mikill skellur fyrir kvenmenn í Counter-Strike og bætir enn í áhyggjur af efnahagslegri stöðu esports þar sem fjölmörg félög hafa nýlega farið í hópuppsagnir.
Samt eru ekki allar fréttir slæmar. Í Valorant heldur Game Changers keppnirnar áfram að dafna og naut nýjasta heimsmeistaramótið svo mikilla vinsælda að heimsþekkti stúlknahópurinn KATSEYE lét lagið sitt M.I.A verða opinbert þema mótsins. Þá hefur Riot Games fært Game Changers velgengnina yfir í League of Legends þar sem fyrirtækið hélt sitt fyrsta opinbera kvennamót. Þar stóð liðið Eterna sig best og vann G2 Hel 3-1 í úrslitum og tryggði sér titilinn ásamt 5.000 evrum í verðlaunafé, um það bil 735.000 krónum.
Þótt staðan sé krefjandi stendur samfélag kvenna í esports enn styrkum fótum og minnir á að þróunin er langt frá því að stöðvast. Allt bendir til þess að framtíðin verði bæði fjölbreytt og spennandi ef þrýstingur er haldið áfram og réttum tækifærum haldið á lofti.
Myndir: x.com / @7liciousCSGO



