Close Menu
    Nýjar fréttir

    Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun

    18.06.2025

    Nýr Sonic-leikur á leiðinni – Stærsta kappakstursævintýrið hingað til

    18.06.2025

    Battlefield 6 nálgast: EA lofar stórviðburði síðar í sumar

    18.06.2025

    Hideo Kojima rúllar upp framtíð leikja: Death Stranding 2 og OD sýnd í fyrsta sinn

    17.06.2025
    1 2 3 … 248 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Incoming
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
      • Rafíþróttir
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured

      Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

      Chef-Jack13.05.2025
      Recent

      Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

      13.05.2025

      Leikjarýni: Bullet Yeeters – Jetpack, byssur og sprengingar í stofunni – Nýr fjölspilunarleikur breytir heimilinu í vígvöll – og það með stæl – VARÚÐ

      09.05.2025

      Leikjarýni: Þú færð kannski ekki vinning – Ekki örvænta – Taylor Swift er samt með þér

      04.05.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    esports.is
    Forsíða»PC leikir»Foreldrar 11 ára drengs með raskanir ánægð með rafíþróttirnar á Íslandi – „Hann er glaðlyndari, sjálfsöruggari, opnari og félagslyndari“
    Tölvuleikur
    PC leikir

    Foreldrar 11 ára drengs með raskanir ánægð með rafíþróttirnar á Íslandi – „Hann er glaðlyndari, sjálfsöruggari, opnari og félagslyndari“

    Chef-Jack21.11.20193 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Tölvuleikur

    Reynslusaga foreldra af 11 ára dreng sem greindur hefur með raskanir var birt á facebook síðu Rafíþróttadeildar Ármanns.

    Þar segir meðal annars að starfið hjá Rafíþróttadeild Ármanns hefur á þann hátt rofið hans félagslegu einangrun og styrkt hann félagslega og gefið honum aukið sjálfstraust sem hann hefur nýtt sér á öðrum sviðum í sínu lífi.

    Hér eftirfarandi er pistillinn:

    „Sonur minn er 11 ára og byrjaði að æfa með Rafíþróttadeild Ármanns þegar hún var stofnuð nú í haust 2019. Hann er greindur með raskanir sem eru hamlandi fyrir hann svo hann tekst á við ýmsar áskoranir í sínu daglega lífi. Frá því að hann var lítill hefur hann prófað margar hefðbundnar íþróttir en það hefur oftar en ekki aðeins valdið honum kvíða og vanlíðan.

    Við foreldrar hans höfum því oft þurft að hugsa út fyrir kassann þegar kemur að því að finna íþrótt eða tómstund sem hentar honum. Eitt af því sem hann getur átt erfitt með eru félagsleg
    samskipti og þá sérstaklega við jafnaldra sína. Það hefur valdið því að hann á það til að einangra sig félagslega og vill stundum lítið fara út úr húsi. Hann hefur mikinn áhuga á tölvuleikjum og það er helst í gegnum þá sem hann á í samskiptum við aðra krakka eftir skóla.

    Þegar Rafíþróttadeild Ármanns var stofnuð var hann mjög spenntur og áhugasamur um að mæta þar á æfingar og þangað finnst honum gott að koma. Þar taka á móti honum þjálfarar sem eru flottar fyrirmyndir sem hann lítur upp til og þar er hann hluti af hóp sem honum finnst hann tilheyra, þar sem hann og hans áhugamál er samþykkt. Í íslensku samfélagi hefur því miður ríkt frekar neikvætt viðhorf gagnvart tölvuleikjum og þeim sem þá spila og það hefur ekki góð áhrif á sjálfsmat barna sem falla inn í þann flokk.

    En með því að stofna Rafíþróttadeild Ármanns er verið að senda börnum þau skilaboð að það sé í lagi að hafa áhuga á tölvuleikjum og að það sé ekki neikvætt heldur jákvætt. Þar læra þau líka að umgangast tölvuna á heilbrigðan og skynsamlegan hátt. Með því að hafa skipulagt starf þar sem mætt er á fastar æfingar nokkrum sinnum í viku, eins og í öðrum íþróttum, hefur sonur minn fengið tækifærið til þess að rækta áhugamál sitt sem alvöru íþrótt sem hann er góður í. Ennfremur hefur það skapað honum vettvang til þess að kynnast og eiga í samskiptum við jafnaldra sína sem deila hans áhugamáli, stað þangað sem hann getur mætt eftir skóla til að stunda sitt áhugamál.

    Starfið hefur á þann hátt rofið hans félagslegu einangrun og styrkt hann félagslega, sem hefur í kjölfarið gefið honum aukið sjálfstraust sem hann hefur getað nýtt sér á öðrum sviðum í sínu lífi. Síðan hann byrjaði að æfa hjá Rafíþróttadeild Ármanns finnst mér ég hafa séð heilmikla breytingu á honum til hins betra. Hann er glaðlyndari, sjálfsöruggari, opnari og félagslyndari en hann var áður og virkari í lífinu almennt.

    Ég vona innilega að Rafíþróttadeild Ármanns fái tækifæri til þess að blómstra í framtíðinni þar sem ég held að mörg börn muni njóta góðs af því góða starfi sem þar fer fram. Það skiptir miklu máli að hafa þennan valkost í flóru íþróttanna á Íslandi.“

    Mynd: úr safni og tengist fréttinni ekki beint

    Rafíþróttadeild Ármanns
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Þessir skotleikir verða algjör sprengja! Heitustu leikirnir 2025

    03.02.2025

    PC leikmenn fá loks að upplifa The Last of Us Part II í endurútgáfunni – Vídeó

    02.02.2025

    Nýr þáttur hjá Leikjavarpinu – Leikir væntanlegir 2025, GTA IV, Doom: The Dark Ages ásamt fjölda annarra leikja

    31.01.2025

    Marvel Rivals bannar mods – En moddarar láta ekki bannið stoppa sig

    30.01.2025
    Við mælum með

    Nýtt ævintýri frá CCP: EVE Frontier er mættur

    11.06.2025

    Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End – kemur út í sumar

    08.06.2025

    Hver er TGLTN – óstöðvandi PUBG-snillingur frá Ástralíu? – þetta myndband segir meira en þúsund orð

    07.06.2025

    Fréttir alla daga, alla mánuði – 17 ára saga – eSports.is þjónustar íslenska leikjamenningu

    25.05.2025
    1 2 Next
    Mest lesið
    • Hong Kong bannar tölvuleik með tilvísun í lög um þjóðaröryggi – leikurinn sagður hvetja til aðskilnaðar og valdaráns - Reversed Front: Bonfire
      Tölvuleikur bannaður í Hong Kong – spilarar eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
      16.06.2025
    • Battlefield 6 nálgast: EA lofar stórviðburði síðar í sumar
      Battlefield 6 nálgast: EA lofar stórviðburði síðar í sumar
      18.06.2025
    • Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun - Prince of Persia: The Sands of Time
      Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun
      18.06.2025
    • Nýr Sonic-leikur á leiðinni - Stærsta kappakstursævintýrið hingað til - Sonic Racing: CrossWorlds
      Nýr Sonic-leikur á leiðinni – Stærsta kappakstursævintýrið hingað til
      18.06.2025
    • Hideo Kojima rúllar upp framtíð leikja: Death Stranding 2 og OD sýnd í fyrsta sinn
      Hideo Kojima rúllar upp framtíð leikja: Death Stranding 2 og OD sýnd í fyrsta sinn
      17.06.2025
    Leikjarýni í vinnslu

    17. júní 2025 – Run Pizza Run
    (Leikjarýnin lítur dagsins ljós á næstu dögum.)

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.