Frumleg norræn fantasía nýtur sín á nýjum leikjavettvangi Nintendo.
Það var ekki af verri endanum þegar nýjasta Nintendo Direct kynningin afhjúpaði glænýja stiklu fyrir Hela, hlýlegan þriðju persónu ævintýraleik sem hefur þegar vakið verðskuldaða athygli. Leikurinn kemur út árið 2026 og mun meðal annars birtast á nýju Nintendo Switch 2, ásamt Xbox Series S|X, PlayStation 5 og PC.
Hela er fyrsta útgáfa leikjastúdíósins Windup Games, sem margir kannast við úr Unravel-seríunni. Leikurinn dregur innblástur frá norrænni þjóðtrú og náttúru og segir sögu góðviljaðrar nornarkonu sem býr í fögrum norðurskógi ásamt tryggum fylgifiskum sínum, litlum og snaggaralegum músum með töframátt.
En þegar nornin veikist snýst sagan við, og leikmaðurinn þarf að leggja í ferðalag um ævintýraleg landsvæði, leysa þrautir, safna jurtum og galdra fram lækningar til að hjálpa henni á ný.
„Við erum ótrúlega spennt að vera hluti af Nintendo Direct og loksins geta sýnt Hela fyrir þann hluta samfélagsins sem hefur beðið eftir Switch-útgáfu,“
segir Alexander Benitez, framkvæmdastjóri Windup Games í fréttatilkynningu.
„Við trúum því einlæglega að leikurinn eigi fullkomlega heima á Switch 2.“
Eugenio Vitale, útgáfustjóri hjá Knights Peak sem gefur leikinn út, tekur í sama streng:
„Nintendo Switch 2 er kjörin vettvangur fyrir Hela, ekki bara vegna tækninnar heldur vegna samfélagsins sjálfs, Nintendo leikmenn kunna að meta hlýja, þroskandi og innihaldsríka leiki.“
Trailer
Stiklan sem kynnt var í Direct-viðburðinum má sjá hér:
Eins og áður segir, þá kemur Hela út árið 2026 á Nintendo Switch 2, Xbox Series S|X, PlayStation 5 og PC.
Hela meðal stærstu leikja í nýjasta Nintendo Direct
Í nýjasta Nintendo Direct sýndi Nintendo úrval af væntanlegum leikjum fyrir Switch og Switch 2, þar á meðal glænýja stiklu fyrir Hela. Kynningin spannar marga spennandi titla, en Hela stóð upp úr með sinni töfrandi blöndu af norrænni þjóðtrú og opnum ævintýraheimi.
Myndir: aðsendar







