Heimur tónlistar og rafíþrótta rann saman í september þegar PUBG kynnti samstarf við sjálfan G-DRAGON, einn af stærstu poppstjörnum Asíu og leiðtoga hljómsveitarinnar BIGBANG. G-DRAGON hefur í rúman áratug verið þekktur sem tákn í K-Pop heiminum, bæði sem söngvari, rappari og hönnunarikon sem hefur rofið hefðir og mótað tískustraum.
Því var það ekki lítil tíðindi þegar hann steig inn í leikjaheiminn með PUBG, þar sem frægðarblær hans féll fullkomlega að taktfastri hasarstemningu vígvallarins.
Samstarfið hófst nú á dögunum og strndur yfir í nokkrar vikur, með verðlaunum sem halda spilurum við efnið. Meginatriðið var nýr progressive AUG skis sem breytist og þróast eftir því sem leikmenn vinna sér inn stig. Skotvopnið er ekki bara skraut heldur lifandi listaverk með hreyfðum „kill effects“, sérsniðnum útlitsbreytingum, sérstökum „finish“ hreyfingum og jafnvel eigin „loot crate“.
Auk þess bjóða sérhannaðir búningar, hjálmar, fallhlífar, bakpokar upp á að leikmenn geta klætt sig bókstaflega í stíl G-DRAGON. Úrvalið er sett upp í svokölluðu step-up kerfi þar sem verðlaunin eykst eftir því sem lengra er haldið.
Til að toppa pakkann koma einnig sérstakar hreyfingar, tónlistarbútur í lobby leikjanna og sjónrænt yfirbragð sem gaf samspilinu áþreifanlega tónlistarhátíðarstemningu áður en fyrstu byssukúlurnar fljúga.
Verkefnin leiða leikmenn í gegnum daglegar og vikulegar áskoranir. Það þarf að opna sérstaka kassa, nota búninga eða framkvæma ákveðnar hreyfingar inni í leiknum. Í staðinn fá spilarar G-DRAGON-miða sem geta verið skipt út fyrir hluti eða aukinn vinning í verðlaunapottum. Þannig er samstarfið ekki aðeins sjónrænt heldur einnig virk leið til að hvetja spilara til að sýna sig og sanna.
Þótt þetta hafi verið kynnt sem „Mobile“ viðburður, var upplifunin á PC í gegnum BlueStacks engu minni. Þar fengu leikmenn nákvæma stjórn með lyklaborði og mús, auk þess sem macro-tól og multi-instance stuðning gerði þeim kleift að hámarka tímann og sökkva sér ofan í G-DRAGON stílinn.
Samstarfið er eitt það metnaðarfyllsta sem PUBG hafði sett af stað til þessa. Það sýndi hvernig leikjamenning, tónlistarheimur og tískuvitund geta runnið saman í einu sameiginlegu sviði.
Nánar um uppfærsluna er hægt að lesa með með því að smella hér.
Mynd: pubg.com








