
Í gærkvöldi var stigið markvert skref í átt að framtíð rafíþrótta í Minecraft, þegar haldið var metnaðarfullt tilraunamót sem gaf skýra mynd af því hvernig leikurinn getur virkað sem keppnisíþrótt á alþjóðlegum vettvangi.
Um var að ræða 5 gegn 5 keppni þar sem PvP-bardagar voru í forgrunni, en leikjakerfið sameinaði RPG, hraða og ákafa bardagaspilun ásamt taktískri hugsun sem minnir á MOBA-leiki. Alls tóku 70 leikmenn þátt, skipaðir í 12 lið, og var þetta fyrsta mótið sem haldið er í þessu keppnisformi.
Mótið vakti töluverða athygli og var sýnt í beinni útsendingu með sérhönnuðu HUD-viðmóti og lýsendum. Um 150 áhorfendur fylgdust með í beinni þegar liðin börðust um sigurinn.
Margir af sterkustu leikmönnum senunnar tóku þátt, þar á meðal leikmenn úr svokölluðu High Tier umhverfi, og viðbrögðin voru afar jákvæð. Að sögn skipuleggjenda var stemningin frábær og þátttakendur sammála um að keppnisfyrirkomulagið væri bæði spennandi og vel heppnað.
Upptaka af mótinu er nú aðgengileg á netinu og vonast skipuleggjendur til að framtakið hjálpi samfélaginu að sjá hvaða möguleikar felast í Minecraft þegar kemur að keppni í rafíþróttum. Að þeirra mati sýnir mótið að leikurinn getur vel staðið undir skipulögðu keppnisformi.


