Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Gamescom 2025 verður stærri en nokkru sinni – GameTíví fangar stemninguna
    Gamescom
    Tölvuleikir

    Gamescom 2025 verður stærri en nokkru sinni – GameTíví fangar stemninguna

    Chef-Jack16.08.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Gamescom

    Eitt stærsta viðburðaár tölvuleikjaiðnaðarins nálgast þegar Gamescom 2025 fer fram í Köln í Þýskalandi dagana 20. til 24. ágúst. Dagskráin hefst þó kvöldið 19. ágúst með Opening Night Live, þar sem fjölmargir stærstu framleiðendur heims kynna nýjustu afurðir sínar.

    Sýningin verður enn umfangsmeiri en áður, með um 11 prósenta fjölgun sýnenda sem koma nú frá alls 60 löndum.

    Hvar er hægt að horfa á í beinni?

    Þeir sem ekki geta verið á staðnum geta fylgst með beinni útsendingu á vefsíðu Gamescom, á Twitch eða YouTube.

    Microsoft hefur staðfest að Xbox verður stór á sýningunni. Þar verður hægt að sjá og prófa ROG Ally sem er lítil leikjatölva frá Asus sem keyrir á Windows. Forpöntun opnar 20. ágúst og tækin koma á markað í október. Búast má við að þessi kynning dragi til sín mikla athygli áhugafólks um ferðavænan leikjabúnað.

    Hægt er að horfa í beinni á YouTube, Twitch eða TikTok.

    GameTíví á leið á Gamescom

    „Við Dói ætlum á Gamescom og verðum með efni á bæði TikTok og Instagram,“

    segir Ólafur Þór Jóelsson, einnig þekktur sem Óli hjá GameTíví, í samtali við esports.is.

    Hollow Knight: Silksong loksins spilanlegt

    Eftir langa bið verður indíleikurinn Hollow Knight: Silksong í fyrsta sinn spilanlegur á Gamescom. Gestir geta prófað leikinn bæði á hefðbundnum tölvum og á nýju Ally-leikjatölvunum. Aðdáendur telja að þetta sé skýr vísbending um að útgáfudagur sé handan við hornið.

    Frumsýning á Call of Duty: Black Ops 7

    Ein stærsta tilkynning sýningarinnar verður frumsýning á Call of Duty: Black Ops 7 í Opening Night Live. Sögusagnir herma að leikurinn muni færa seríuna á nýjar slóðir og leggja enn meiri áherslu á fjölspilunarupplifun.

    Blizzard flytur BlizzCon á Gamescom

    Þar sem BlizzCon verður ekki haldin í ár mun Blizzard nýta Gamescom til að kynna næstu stóru viðbót við World of Warcraft, sem ber heitið Midnight. Viðbótin mun meðal annars innihalda nýtt húsnæðiskerfi fyrir leikmenn, sem hefur verið mikið óskað eftir í gegnum árin.

    Gamescom 2025 lofar að verða einstakur vettvangur fyrir bæði leikjaspilara og iðnaðinn sjálfan. Með blöndu af frumsýningum, leikjum sem beðið hefur lengi eftir og nýrri tækni er ljóst að augun munu beinast að Köln 20. til 24. ágúst.

    Samsett mynd: facebook / Gamescom

    call of duty Call of Duty: Black Ops 7 Gamescom GameTíví Hollow Knight: Silksong Incoming
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.