Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur

    Chef-Jack13.12.2025Uppfært13.12.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Kassi og Icenosi með GeT_RiGhT. Þegar goðsögnin mætir og myndin verður skylduefni í ferðasögunni. F.v. Kassi, GeT_RiGhT og Icenosi
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    NAVI á sviðinu eftir sigurinn. Höllin logaði af stemningu og gulu litirnir tóku yfir.

    Dagur fjögur í ferðalagi Icenosa og Kassa til Búdapest bauð upp á allt það sem CS2 Major mót eiga að vera. Stór augnablik, óvæntar tilfinningar, goðsagnir í eigin persónu og leiki sem höfðu bein áhrif á pick’em spár heimsins. Þótt tæknivesen hafi komið í veg fyrir IRL-streymi þennan dag var upplifunin engu að síður „geggjað“, eins og Icenosi orðaði það sjálfur.

    „Við byrjuðum daginn á því að taka 2v2 á móti Svíum og enduðum á að sigra,“

    segir Icenosi.

    „Svo sameinuðumst við Jwalker og konunni hans og röltum um svæðið.“

    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Kassi með fl0m við Monster básinn
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Icenosi nær mynd með fl0m við Monster básinn, klassískt Major augnablik sem fer beint í minningarbankann.

    Þar var ekki langt í næsta stóra augnablik, en auglýst hafði verið að Flom og hinn eini sanni GeT_RiGhT myndu vera við Monster-básinn. Þar fengu félagarnir bæði eiginhandaráritanir og myndir, og rétt fyrir utan stóð AustinCS.

    „Ég fékk auðvitað mynd með honum líka,“

    bætir Icenosi við, greinilega sáttur við uppskeru dagsins áður en boltinn fór af stað inni í höllinni.

    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Jwalker í fullri einbeitingu við tölvuna. Þetta leit út eins og alvöru duel stilling, engin miskunn á lyklaborðinu.
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    NAVI á sviðinu eftir sigurinn. Höllin logaði af stemningu og gulu litirnir tóku yfir.

    Fyrsti leikur dagsins var viðureign FaZe og MOUZ og stemningin var strax rafmögnuð.

    „Það var ótrúlega gaman að fylgjast með Karrigan þegar FaZe labbaði inn á sviðið,“

    segir Icenosi. Leikurinn sjálfur olli ekki vonbrigðum, FaZe tók bæði möpin, 13:11 á Nuke og síðan algjöra yfirburði á Inferno þar sem þeir unnu 13:2. Tilfinningarnar voru þó ekki einungis á sigurvímunni.

    „Torzsi fór að gráta, hann var að spila í heimalandinu sínu,“

    segir Icenosi. Eftir leikinn var þó létt yfir hópnum og Icenosi bætti við sigri í 1v1 einvígi gegn Jwalker.

    „Ég pakkaði honum saman,“

    segir hann brosandi.

    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    GridIt drónaleikurinn vakti mikla athygli. Hraði, nákvæmni og smá flugtilfinning mitt á Major svæðinu.
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Icenosi og Kassi í 2v2 bardaga. Samvinna og íslenskur bragur á leiknum.

    Milli leikja var farið víða um sýningarsvæðið þar sem fjölbreytt afþreying beið gesta. Þar á meðal var háskóli í Búdapest með kynningu á námi sínu og rafíþróttaliði, GridIt drónaleikur sem gestir gátu prófað og fjöldi sim racing uppsetninga sem drógu að sér forvitna áhorfendur. Rétt hjá voru The Mongolz með Meet and Greet, en röðin var svo löng að félagarnir létu sér nægja mynd úr fjarlægð.

    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    The MongolZ í Meet and Greet. Röðin var löng og stemningin þétt, þannig að mynd frá fjarlægð varð að duga.
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    2v2 leiknum lauk með sigri.

    Seinni stórleikur dagsins var viðureign NAVI og FURIA, og þar var áhorfendahópur FURIA strax farinn að láta í sér heyra. Trommur, söngur og læti fylltu höllina, líkt og fyrri daga mótsins. Fyrsta map kom þó mörgum á óvart þegar NAVI vann Mirage örugglega 13:5.

    „Allir voru bara að öskra NAVI, NAVI,“

    segir Icenosi og lýsir stemningunni sem ólýsanlegri. Á Inferno virtist NAVI byrja með yfirhöndina en missti leikinn úr höndunum og FURIA jafnaði með 16:13 sigri.

    Allt stefndi því í hreinan úrslitaleik og þar virtist eitthvað hafa breyst hjá NAVI. Á Train áttu FURIA einfaldlega ekki séns og NAVI sigldi öruggum 13:3 sigri í höfn.

    „Þegar NAVI spilaði síðast gegn FURIA á Train töpuðu þeir 13:1, en núna var þetta allt annað. Sææææææll,“

    segir Icenosi.

    Fagnaðarlætin í höllinni voru gríðarleg, að hans sögn meiri en í FaZe gegn MOUZ leiknum, og úrslitin höfðu áhrif víða.

    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Icenosi í 1v1 einvígi. Full einbeiting, engin miskunn og klassísk Major aukakeppni í gangi.
    GeT_RiGhT hittingur og NAVI öskur ómaði um höllina á degi fjögur - CS2 Major mót - Búdapest
    Icenosi með AustinCS á svæðinu, óvænt side quest milli leikja

    „Þessi leikur skemmdi pick’em hjá rosalega mörgum,“

    bætir hann við.

    Eftir langan og tilfinningaþrunginn dag var stefnan tekin beint upp á hótel. Þreytan var orðin mikil og kvöldmaturinn fór forgörðum.

    „Við vorum bara dauðþreyttir eftir svona langa leiki,“

    segir Icenosi. Hann lofar þó að streymið snúi aftur af fullum krafti.

    „Við verðum mættir aftur á morgun, 13. desember, og mögulega verður 5v5 með bara Íslendingum.“

    Ferðablogg Icenosa og Kassa heldur því áfram að færa íslenskum CS aðdáendum einstaka innsýn í það sem gerist bæði á sviðinu og bak við tjöldin á stærsta móti ársins.

    Smellið hér –>> Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.

    Myndir: Icenosi

    Icenosi Icenosi og Kassi á Major í Búdapest 2025 Íslenskt efni Kassi Major Búdapest 2025 picks
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.