Dagur fjögur í ferðalagi Icenosa og Kassa til Búdapest bauð upp á allt það sem CS2 Major mót eiga að vera. Stór augnablik, óvæntar tilfinningar, goðsagnir í eigin persónu og leiki sem höfðu bein áhrif á pick’em spár heimsins. Þótt tæknivesen hafi komið í veg fyrir IRL-streymi þennan dag var upplifunin engu að síður „geggjað“, eins og Icenosi orðaði það sjálfur.
„Við byrjuðum daginn á því að taka 2v2 á móti Svíum og enduðum á að sigra,“
segir Icenosi.
„Svo sameinuðumst við Jwalker og konunni hans og röltum um svæðið.“
Þar var ekki langt í næsta stóra augnablik, en auglýst hafði verið að Flom og hinn eini sanni GeT_RiGhT myndu vera við Monster-básinn. Þar fengu félagarnir bæði eiginhandaráritanir og myndir, og rétt fyrir utan stóð AustinCS.
„Ég fékk auðvitað mynd með honum líka,“
bætir Icenosi við, greinilega sáttur við uppskeru dagsins áður en boltinn fór af stað inni í höllinni.
Fyrsti leikur dagsins var viðureign FaZe og MOUZ og stemningin var strax rafmögnuð.
„Það var ótrúlega gaman að fylgjast með Karrigan þegar FaZe labbaði inn á sviðið,“
segir Icenosi. Leikurinn sjálfur olli ekki vonbrigðum, FaZe tók bæði möpin, 13:11 á Nuke og síðan algjöra yfirburði á Inferno þar sem þeir unnu 13:2. Tilfinningarnar voru þó ekki einungis á sigurvímunni.
„Torzsi fór að gráta, hann var að spila í heimalandinu sínu,“
segir Icenosi. Eftir leikinn var þó létt yfir hópnum og Icenosi bætti við sigri í 1v1 einvígi gegn Jwalker.
„Ég pakkaði honum saman,“
segir hann brosandi.
Milli leikja var farið víða um sýningarsvæðið þar sem fjölbreytt afþreying beið gesta. Þar á meðal var háskóli í Búdapest með kynningu á námi sínu og rafíþróttaliði, GridIt drónaleikur sem gestir gátu prófað og fjöldi sim racing uppsetninga sem drógu að sér forvitna áhorfendur. Rétt hjá voru The Mongolz með Meet and Greet, en röðin var svo löng að félagarnir létu sér nægja mynd úr fjarlægð.
Seinni stórleikur dagsins var viðureign NAVI og FURIA, og þar var áhorfendahópur FURIA strax farinn að láta í sér heyra. Trommur, söngur og læti fylltu höllina, líkt og fyrri daga mótsins. Fyrsta map kom þó mörgum á óvart þegar NAVI vann Mirage örugglega 13:5.
„Allir voru bara að öskra NAVI, NAVI,“
segir Icenosi og lýsir stemningunni sem ólýsanlegri. Á Inferno virtist NAVI byrja með yfirhöndina en missti leikinn úr höndunum og FURIA jafnaði með 16:13 sigri.
Allt stefndi því í hreinan úrslitaleik og þar virtist eitthvað hafa breyst hjá NAVI. Á Train áttu FURIA einfaldlega ekki séns og NAVI sigldi öruggum 13:3 sigri í höfn.
„Þegar NAVI spilaði síðast gegn FURIA á Train töpuðu þeir 13:1, en núna var þetta allt annað. Sææææææll,“
segir Icenosi.
Fagnaðarlætin í höllinni voru gríðarleg, að hans sögn meiri en í FaZe gegn MOUZ leiknum, og úrslitin höfðu áhrif víða.
„Þessi leikur skemmdi pick’em hjá rosalega mörgum,“
bætir hann við.
Eftir langan og tilfinningaþrunginn dag var stefnan tekin beint upp á hótel. Þreytan var orðin mikil og kvöldmaturinn fór forgörðum.
„Við vorum bara dauðþreyttir eftir svona langa leiki,“
segir Icenosi. Hann lofar þó að streymið snúi aftur af fullum krafti.
„Við verðum mættir aftur á morgun, 13. desember, og mögulega verður 5v5 með bara Íslendingum.“
Ferðablogg Icenosa og Kassa heldur því áfram að færa íslenskum CS aðdáendum einstaka innsýn í það sem gerist bæði á sviðinu og bak við tjöldin á stærsta móti ársins.
Smellið hér –>> Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.
Myndir: Icenosi














