[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / Tölvuleikir / Góðar fréttir fyrir íslenska PUBG spilara – Tvö spennandi mót á næstunni
Nýr þáttur alla miðvikudaga

Góðar fréttir fyrir íslenska PUBG spilara – Tvö spennandi mót á næstunni

PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG)

Næsta PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) online mót fer fram sunnudaginn 6. apríl, og verður það haldið samkvæmt gamla keppnisfyrirkomulaginu.

Mótið samanstendur af sex leikjum, með hámark 18 lið, þar sem fyrstir koma, fyrstir fá.

Skráning á mótið opnar sunnudaginn 16. mars næstkomandi – tryggðu þér sæti í tæka tíð!

Scrim æfingamót 23. mars – Frí þátttaka

Áður en mótið sjálft hefst gefst spilurum tækifæri til að skerpa á leikforminu í Scrim æfingamótinu, sem fer fram 23. mars.

Einstaklingar sem eru án liðs eru sérstaklega hvattir til að skrá sig á Mix-listann, sem gerir þeim kleift að finna liðsfélaga fyrir æfingamótið.

Mynd: pubg.com

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
x

Check Also

Íslenska PUBG samfélagið

Mótadagskrá PUBG: Battlegrounds kynnt – Deildarkeppni Gametíví fram undan og Íslandsmótið í desember

Mótastjórn PUBG: Battlegrounds hefur komið ...