Verð á stórleikjum gæti nálgast 100 dali á næstu árum og samkvæmt fyrrverandi leikstjóra Call of Duty er nær óhjákvæmilegt að sú þróun hefjist með Grand Theft Auto 6.
Í viðtali við Esportsbets ræddi Greg Reisdorf, fyrrverandi multiplayer hönnunarstjóri Call of Duty, um væntanlegt verðþak á svokölluðum AAA leikjum. Að hans mati vilji enginn útgefandi vera sá fyrsti til að setja 100 dala verðmiða á leik, nema sá útgefandi sem hefur bolmagn og traust til þess. Þar nefnir hann sérstaklega Grand Theft Auto 6.
Reisdorf telur að GTA 6 geti brotið þessa óformlegu verðþaki án þess að það hafi teljandi neikvæð áhrif á sölu. Að hans mati muni leikurinn seljast gríðarlega vel óháð verðinu, einfaldlega vegna umfangs, gæðastigs og væntinga. Hann bendir á að neytendur séu í raun vanir því að fá það sem þeir borga fyrir og að GTA 6 hafi alla burði til að réttlæta hærra verð.
Sögusagnir um 100 dala verðmiða hafa verið á kreiki um nokkurt skeið og Reisdorf er ekki einn um þá skoðun. Hann bendir á að þróun og rekstur á umfangsmiklum netheimi GTA Online krefjist verulegs fjárfestingar, bæði í innviðum og stöðugri efnisframleiðslu, sem geri hefðbundið verðlag sífellt erfiðara að réttlæta fyrir útgefendur.

Þrátt fyrir að margir leikmenn hafi lýst óánægju með hugsanlega verðhækkun telur Reisdorf hana nánast óhjákvæmilega. Spurningin sé fremur hvort GTA 6 verði vendipunkturinn sem ýti allri greininni yfir nýtt verðþrep. Að hans mati muni margir fjölspilunarleikir finna fyrir aukinni samkeppni þegar GTA 6 birtist á sjónarsviðið og þar nefnir hann sérstaklega eldri titla á borð við Warzone, þar sem stór hluti leikmanna gæti flust yfir í nýjan netheim Rockstar.

Útgefendur séu að hans sögn að bíða eftir því að einhver stígi fyrsta skrefið. Þegar það gerist muni aðrir fylgja í kjölfarið. Hann telur ólíklegt að Call of Duty verði fyrsti leikurinn til að hækka í 100 dali, en útilokar alls ekki að Call of Duty taki það skref síðar.
Reisdorf bendir einnig á að þrýstingur frá fjárfestum muni aukast eftir því sem þróunarkostnaður leikja heldur áfram að hækka. Þegar einn stórtitill sannar að markaðurinn þoli hærra verð verði erfitt fyrir aðra útgefendur að standa hjá.
Samkvæmt núverandi áætlunum á Grand Theft Auto 6 að koma út 19. nóvember, að því gefnu að ekki verði frekari tafir. Þegar sá dagur rennur upp gæti hann markað upphaf nýs kafla í verðlagningu tölvuleikja.
Myndir: rockstargames.com




