
GTSIceland (rafíþróttadeild í kappakstursleikjum) hefur gert stórt skref fram á við með nýju samstarfi við Gametíví og Senu sem mun styrkja bæði gæði útsendinga og upplifun fyrir áhorfendur á keppnum í úrvalsdeild í vetur.
Gametíví mun lána GTSIceland stúdíóið sitt í Arena fyrir allar keppnir úrvalsdeildarinnar, en aðstaðan var þegar nýtt með góðum árangri á síðasta keppnistímabili í opnu og 2. deild. Þetta samstarf er talið jafngilda því að stíga aftur upp á gæðastigið sem GTSIceland bauð áður upp á í samvinnu við RÍSÍ.
Þar verða hljóð- og myndgæði til fyrirmyndar, auk þess sem notkun OBS gefur möguleika á öflugra framleiðsluferli og meira upplýsingaflæði til áhorfenda.
Áhorfendur munu einnig njóta þess að Gametíví streyma frá öllum keppnum úrvalsdeildarinnar á Twitch-rás sinni sem þegar hefur yfir 6500 fylgjendur. Þar að auki verður keppnunum gerð skil á miðlum Gametíví og unnið að auknu efni sem styrkir umgjörð keppnanna.
Samstarfið nær einnig til Senu sem mun styðja við verkefnið með verðlaunum og sérafslætti af sínum vörumerkjum fyrir meðlimi allt keppnisárið. Sena flytur meðal annars inn vörur frá Next Level Racing og Thrustmaster sem margir í samfélaginu þekkja vel, auk þess sem nýjar og spennandi vörur eru á leiðinni inn.
„Við erum að fara í gang og þetta verður stórt,“
segir stjórn GTSIceland í tilkynningu sem fagnar samstarfinu við Gametíví og Senu.



