Heim / PC leikir / Hugi.is í sögulegu lágmarki
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

Hugi.is í sögulegu lágmarki

Núna standa yfir heilmiklar breytingar á samskiptasíðunni Hugi.is, en unnið er nú hörðum höndum að endurgera alla síðuna.

“Nýi Hugi verður töluvert frábrugðnari frá því sem nú er enda var enginn steinn óveltur í löngu þróunarferli. Samt er hugsjónin í aðalatriðum áfram óbreytt, við höfum áhugamál, greinar, korkar, myndir og allt það ásamt öllu efninu sem til var”, segir vefstjóri Huga í tilkynningu um það sem vænta má í nýja Huga.

Núna stendur yfir beta prófun og má vænta opnun á nýjum Huga í næstu viku, “Hugi er núna í sögulegu lágmarki” segir vefstjóri Huga um leið og hann auglýsir eftir virkum stjórnendum á síðuna.

eSports.is hefur rætt við nokkra stjórnendur á íslenskum spjallsíðum og allir hafa sömu sögu að segja en töluverð fækkun hefur verið á heimsóknum og benda allir á hóp/grúppu þróunina á Facebook, þ.e. að fjölmargar íslenskar leikjagrúppur og önnur áhugamál hafa verið stofnaðar.

Mynd: Skjáskot af nýja Huga

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

x

Check Also

Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

Solid Clouds býður hluthafa sína ...