Á PC Gaming Show Tokyo var nýr horror leikur afhjúpaður sem fær kaldan svita að renna niður bakið. Hann ber heitið Huntsman og er frumraun smástudíósins OnTheHouse Studios. Leikurinn er borinn uppi af ekta köngulóafælni og lofar að verða ein allsherjar martröð fyrir þá sem eiga erfitt með átta fætur og of mörg augu.
Í tilkynningu frá Ten Image Publishing kemur fram að í Huntsman stígur leikmaðurinn í hlutverk öryggisvarðar hjá Atherton Laboratories þegar allt fer á annan endann. Tilraunir vísindamanna hafa losað úr læðingi köngulær sem skríða nú um ganga rannsóknarstöðvarinnar. Spilarinn stendur vopnlaus og í algjörum minnihluta, með það eina markmið að lifa af, losa um öryggislæsingar og finna leið út úr þessu helvíti áður en hann verður næsta máltíð.
Áhorfendur fengu fyrstu sýn á leikinn í glænýjum kynningartraileri. Þar kom fram að Huntsman verður ekki einn á kreiki, því Orb Weaver, banvæn tegund sem vísindamenn hafa einnig átt við, mun ógna lífi spilarans.
Sýnishorn af leiknum (demo) verður aðgengilegt á Steam frá 13. október, en full útgáfa leiksins kemur í nóvember. Leikurinn er nú þegar kominn á óskalista margra aðdáenda á Steam.
Jory House, stofnandi OnTheHouse Studios, segir að leikurinn hafi í raun sprottið upp úr hans eigin ótta við köngulær.
„Huntsman varð leið mín til að vinna á eigin fælni, en frábær viðbrögð spilaranna við frumtilraunum hvöttu mig til að gera úr þessu heilan leik.
Þetta er mitt fyrsta verkefni á markaði og ég hlakka ótrúlega til að sýna öllum hvað heildarútgáfan hefur upp á að bjóða.“
Chris White, stofnandi og framkvæmdastjóri Ten Image Publishing, sem gefur leikinn út, bætti við:
„Það er draumur að hefja útgáfuna á leik sem hefur svona mikið af sér og svona mikinn hrylling. Verk Jory er sönnun þess að hann eigi sér framtíð í greininni og við erum viss um að hann muni halda áfram að skelfa leikmenn um ókomin ár.
Fyrir þá kóngulóafælnu sem fengu kökk í hálsinn við trailerinn… þá biðjum við afsökunar.“
Huntsman leggur áherslu á að skapa djúpa, ógurlega upplifun þar sem lifun byggist ekki bara á krafti heldur á útsjónarsemi og hugrekki. Þeir sem þora geta bætt leiknum á óskalista sinn á Steam og undirbúið sig fyrir október.
Myndir: aðsendar







