Núna fer spennan að færast upp í hámark í GameTíVí PUBG deildinni þar sem liðin eru farin að berjast um hvert einasta stig. Þriðja mótið af fjórum fór fram um helgina og var ekki fyrir hjartveika. Eftir fjóra hraða og taktíska leiki var það lið Omni sem steig upp úr rykmekkinum og tryggði sér fyrsta sætið með glæsibrag.
Keppnin fór fram á hinum fjórum klassísku kortum Rondo, Taego, Miramar og Erangel.
Keppnin er hvergi nærri búin og hvert stig skiptir máli þegar síðasta mótið fer fram. Það verður 2. nóvember 2025 kl. 20:00, og þá verða spilaðir sex leikir sem ráða úrslitum um hvaða lið tryggja sér síðustu sæti í Íslandsmeistaramótið í PUBG.
Sjálft Íslandsmeistaramótið fer síðan fram 6.–7. desember 2025, þar sem 16 bestu lið landsins mætast í lokaorrustunni um titilinn. Þau lið sem að svo stöddu hafa tryggt sér sæti í úrslitunum eru eftirfarandi:
Omni, Pungar, Hlandblettur, KNGR, NcFc, Team-Iceland, FresH, Trúðalestin, Hot Drop, 354 esports, Hraunbitar, B1sdak, Trúðapestin, Hliðarmenn, Cirko og Oldies.
En allt getur breyst, því enn er eitt mót eftir í deildinni, og síðasta umferðin getur hrist upp í töflunni þegar liðin leggja allt undir 2. nóvember.
Mynd: pubg.com




