Stóra stundin er runnin upp því Íslandsmeistaramótið í PUBG fer fram nú um helgina, dagana 6. og 7. desember, og hefst keppni klukkan 20 báða dagana. Um er að ræða hápunkt vetrarins hjá íslenska PUBG-samfélaginu og allt stefnir í spennandi og jafna baráttu.
Horfðu á í beinni
Beint streymi verður á Twitch-rás GameTíVí sem hefur á undanförnum misserum sýnt svart á hvítu að íslenskt PUBG-samfélag er í blóma. Nú tekur við lokaslagurinn þar sem sterkustu lið landsins mætast í úrslitum.
Vegna forfalla hjá HotDrop opnaðist pláss fyrir eitt lið til viðbótar og þurfa áhugasamir að vera snöggir þar sem skráningu lýkur í kvöld. Hægt er að sækja um í Facebook hóp íslenska PUBG-samfélagsins hér.
Erangel í snjóbúningi
Mótið fer fram á kortunum Rondo, Taego, Miramar og Erangel sem öll hafa sín sérkenni og reyna á bæði útsjónarsemi og liðsheild. Keppendur fá einnig að takast á við Erangel í snjóbúningi, en kortið hefur nýverið verið endurhannað með vetrarblæ í nýjustu PUBG-uppfærslunni.
Þessi lið keppa um Íslandsmeistaratitilinn
Mikil spenna ríkir fyrir mótinu þar sem eftirfarandi lið taka þátt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn (raðað eftir stafrófsröð): 354 esports, B1sdak, CPK, FresH, Hlandblettur, Hliðarmenn, Hraunbitar, KNGR, NcFc, Oldies, Omni, Pungar, Team Iceland, Trúðalestin og Trúðapestin.
Allt er því til reiðu fyrir helgi þar sem ekkert verður gefið eftir og úrslitin gætu orðið eitt stærsta umræðuefni vikunnar meðal unnenda rafíþrótta.
Ótrúlega flott kynningarmyndband
Hér fyrir neðan er kynningarmyndband Íslandsmeistaramótsins sem Arro, einn af fremstu PUBG-spilurum landsins útbjó.
Mynd: pubg.com




