
Í gær, laugardaginn 24. ágúst, upplifðu leikjaspilarar óvenjulegt augnablik þegar poppstjarnan Lady Gaga tók þátt í sérstökum viðburði í leiknum Dress To Impress á Roblox.
Þar gafst heppnum aðdáendum tækifæri til að spila hlið við hlið með Lady Gaga sjálfri, og meðal þeirra var íslensk stelpa sem komst að í gegnum útdrátt úr samfélagshóp leiksins.
Viðburðurinn hófst á sérstökum forviðburði þar sem Lana, ein af skipuleggjendum Dress To Impress, stýrði beinni útsendingu með spurninga og svörum við Mother Monster. Aðdáendur höfðu áður fengið tækifæri til að senda inn spurningar, en aðeins hluti þeirra komst í gegnum síuna.
Þegar klukkan sló 12:30 ET (16:30 að íslenskum tíma) birtist Lady Gaga sjálf í leiknum og tók þátt í sérstökum umferðum með spilurum, þar sem þeir þurftu að setja saman flíkur samkvæmt tilteknu þema og stíga síðan á tískupallinn til að sýna sig.

Samsett mynd: x.com / Lady Gaga
81 milljón fylgjendur fengu staðfestingu
Lady Gaga staðfesti þátttökuna með færslu á X þar sem hún setti einfaldlega: „In case you were wondering if it was me.“ Sú staðfesting vakti mikla athygli þar sem Gaga er með yfir 81 milljón fylgjendur á miðlinum.
In case you were wondering if it was me #MAYHEMtoImpress #dresstoimpress pic.twitter.com/6nxfO9RpY0
— Lady Gaga (@ladygaga) August 23, 2025
Dress To Impress er netspilunar tískuleikur sem var gefinn út á Roblox í nóvember 2023. Leikurinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars Builderman Choice of Excellence og Best Creative Direction á Roblox Innovation Awards 2024. Hann gengur út á að leikmenn fá ákveðið þema og hafa sex mínútur til að setja saman sinn eigin stíl áður en þeir stíga á pallinn. Spilarar gefa hvor öðrum stjörnugjöf og þrír efstu enda á verðlaunapalli.
Þátttaka Lady Gaga var einstakt augnablik fyrir samfélagið í kringum Dress To Impress, sem hefur vaxið hratt á stuttum tíma. Fyrir íslensku stúlkuna sem fékk að ganga á tískupallinum með Lady Gaga verður þetta líklega minning sem hún gleymir seint.
„Það var klikkað og ótrúlegt!“ segir íslenska konan Temmidogg02 sem spilaði með Lady Gaga
Íslenska konan sem spilar undir nafninu Temmidogg02 á Roblox fékk það einstaka tækifæri, eins og áður segir, að spila með Lady Gaga í Dress To Impress og lýsir upplifuninni sem ótrúlegri. Hún var ein þeirra sem dregin var út úr samfélagshóp leiksins til að taka þátt í þessum sérstaka viðburði með poppstjörnunni.
„Það var klikkað og ótrúlegt!“ segir hún í samtali við esports.is, um það augnablik þegar hún frétti að hún hefði verið valin.
Þegar hún rifjar upp það sem stóð upp úr viðburðinum segir hún: „Mér fannst skemmtilegast þegar við áttum að klappa hana upp á svið, það var svo sérstakt augnablik.“
Þátttaka Lady Gaga hafði einnig áhrif á upplifun hennar af leiknum: „Já, svo sannarlega. Þetta gerði leikinn mun persónulegri, núna hugsa ég bara: hvaða fræga manneskja gæti birst næst?“
Hún segir að ef hún hefði fengið tækifæri til að spyrja Lady Gaga einnar spurningar, hefði hún spurt: „Hvernig tekst þér að lifa við það að milljónir manna um allan heim fylgist stöðugt með þér?“
Að lokum segir hún að það hafi verið sérstakt að geta deilt upplifuninni með vinum og fjölskyldu. „Það er alveg geggjað. Margir trúðu mér ekki fyrst, því þetta var bara í Roblox. En svo setti hún sjálf mynd á X, sem sannaði fyrir mér að hún var í alvörunni að spila með okkur, ekki einhver gervigreind. Það var ótrúlega gaman.“
Hér að neðan er myndbandsbrot sem Temmidogg02 sjálf tók upp meðan á viðburðinum stóð.



