
Íslenski rafíþróttaspilarinn Jökull „Kaldi“ Jóhannsson rifjar upp upphaf sitt í StarCraft, samkeppnina á Íslandi og leiðina inn í atvinnumennsku í nýju viðtali sem skipuleggjendur StarCraft-hátíðarinnar birtu á dögunum í aðdraganda viðburðarins sem fram fer 7. mars.
Jökull var einn þekktasti íslenski StarCraft II spilari síns tíma og keppti síðar einnig sem atvinnumaður í leiknum Hearthstone. Í viðtalinu segir hann að áhuginn á herkænskuleikjum hafi kviknað mjög snemma.
„Ég hef spilað RTS frá sjö ára aldri. Ég man vel eftir fyrsta leiknum, Dune 2000 sem kom út 1998,“
segir Jökull. Hann bætir við að leiðin inn í StarCraft hafi þó byrjað með öðrum klassískum leik.
„Ég og vinir mínir spiluðum Warcraft 3, þó frekar casual, þannig það lá við að ég myndi einnig prófa StarCraft 2.“
Sterk sena á Íslandi
Á þeim árum þegar StarCraft II naut mestra vinsælda var íslenska senan að hans sögn bæði virk og samkeppnishörð. Fjöldi móta var haldinn og nokkur lið kepptu reglulega um titla.
„Senan á Íslandi var einstaklega sterk. Ég var lengi vel varla í topp tíu,“
segir Jökull. Hann rifjar upp að Þórir „TurboDrake“ og Bergur „wGbNykur“ hafi verið fljótir að byggja upp sterk lið og að samkeppnin hafi verið hörð.
„Það var talsvert rivalry milli Drake og wGb á þessum tíma og mikil samkeppni á mótum, en stemningin var alltaf góð.“
Í viðtalinu er Jökull einnig spurður hvort ákveðnir spilarar hafi verið þeir sem hann þurfti sérstaklega að hafa auga með þegar hann steig inn í íslensku senuna.
„Fyrst þegar ég kom að þessu voru það Sigurður, wGbDanger, og Daníel, Chrobbus, sem voru sterkastir í minningunni,“
segir Jökull. Hann nefnir að Chrobbus hafi risið hratt upp fyrir íslenska sviðið og náð athyglisverðum árangri erlendis.
„Chrobbus fór frekar snemma í topp 200 í Evrópu, Grandmaster League.“
Að hans sögn fylgdu hann sjálfur og Stefán „Shake“ svo í kjölfarið.
„Ég og Stefán fylgdum eftir nokkur seinna. Vorum við fjórir þegar mest var í topp 200.“

Leikir sem standa upp úr
Ferill Jökuls spannar bæði íslensk mót og stærri alþjóðlega viðburði. Í viðtalinu rifjar hann upp nokkra eftirminnilega leiki, þar á meðal við þekkta kóreska atvinnuspilara.
„Sætustu sigrarnir voru á móti Kóreubúum. Þar stendur upp úr leikur gegn Hero sem spilaði fyrir CJ Entus,“
segir hann. Annar hápunktur var þátttaka á DreamHack þar sem hann fékk að etja kappi við einn þekktasta Zerg spilara heims.
„Ég fékk þann heiður að spila á móti Jaedong á DreamHack í Zerg vs Zerg mirror. Þó sá leikur hafi tapast var það mikill hápunktur á ferlinum.“
Á heimavelli nefnir hann sérstaklega úrslitaleik gegn Stefáni „Shake“ sem stendur honum nærri.
„HRingurinn 2013 stendur eflaust upp úr. Við áttum þar mjög langt Best of 5 í úrslitunum, Zerg gegn Protoss.“

Leiðin í atvinnumennsku
Að verða atvinnumaður í rafíþróttum gerist sjaldnast á einni nóttu og Jökull segir að það hafi tekið tíma að átta sig á að hann gæti keppt á hæsta stigi.
„Þegar manni byrjar að ganga vel var stórt skref að byrja að lenda gegn atvinnumönnum á ladder,“
segir hann.
„Það tók æfingu að spila eðlilega gegn einhverjum sem maður vissi að væri atvinnumaður og líklega að streyma leiknum til hundruða eða þúsunda áhorfenda.“
Smám saman fór honum að ganga betur gegn sterkari andstæðingum og þá opnuðust ný tækifæri.
„Þegar þetta byrjaði að ganga fór manni að vera boðið í lið og fékk tækifæri til að fara út. Erlendis kynntist ég fólki sem rak Team House í Sviss og mér var boðið að flytja þangað. Þar voru allir að stunda rafíþróttir sem atvinnu þannig þetta varð allt miklu einfaldara.“
Starfar í dag hjá RÍSÍ
Í dag starfar Jökull sem framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ). Hann segir að það hafi í raun ekki verið hluti af upphaflegum áætlunum sínum eftir atvinnuferilinn.
„Ég fór í fjármálin eftir rafíþróttaferilinn og reiknaði með að starfa við það til lengri tíma,“
segir hann.
„Það er hins vegar skemmtilegt að fá að starfa aftur við rafíþróttir og geta nýtt bæði reynslu af fjármálum og rafíþróttum í starfinu.“
Hann bendir einnig á að umgjörð rafíþrótta hafi breyst mikið á síðustu árum. Þegar hann sneri aftur að greininni árið 2024 hafði hann ekki haft beina aðkomu að henni í tæpan áratug.
Spilar enn af og til
Þrátt fyrir annasamt starf segist Jökull enn finna sér tíma til að spila. Hann hefur meðal annars snúið aftur að Hearthstone og prófað nýja RTS leiki.
„Ég hef verið að fikta svolítið við Hearthstone aftur og það hefur verið mjög skemmtilegt. Leikurinn er kannski minni núna en þegar ég var í atvinnumennskunni, en mér finnst hann í raun skemmtilegri í dag.“
Hann prófaði einnig RTS leikinn Stormgate þegar hann var í opnu beta prógrammi.
„Það var skemmtileg tilbreyting, þó maður sé með aðeins hægari hendur en árið 2012,“
segir hann og bætir við að óvíst sé hvort leikurinn nái þeirri útbreiðslu sem þarf til að verða stór rafíþrótt.
Lítur við á hátíðinni
StarCraft-hátíð verður haldin laugardaginn 7. mars og þar koma saman bæði nýir og reyndir spilarar til að fagna leiknum sem markaði heila kynslóð rafíþrótta.
Jökull segist ætla að líta við á viðburðinum.
„Já, ég mun að minnsta kosti líta við,“
segir hann.
Skipuleggjendur hátíðarinnar þakka Jökli fyrir viðtalið og hvetja áhugafólk um StarCraft til að mæta. Markmiðið er að safna saman bæði nýliðum og reynslumiklum spilurum og rifja upp þá stemningu sem ríkti þegar leikurinn var hvað vinsælastur á Íslandi.
Frekari upplýsingar um viðburðinn má nálgast á Facebook-síðu viðburðarins StarCraft Festival 2026.
Myndir: úr einkasafni



