
Danylo „Zeus“ Teslenko, fyrrverandi atvinnumaður í leiknum Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO), hefur orðið miðpunktur umdeilds máls eftir að hann birti á samfélagsmiðlum myndskeið og ljósmyndir af sér og kínverskri stúlku sem hann kynntist á Shanghai Major mótinu.
Birting efnisins hefur leitt til þess að konunni, Li Xinshi, hefur verið vísað úr háskóla fyrir meint brot á siðareglum.
Í frétt á escorenews.com kemur fram að Zeus dvaldi í Kína í desember 2024 vegna Shanghai Major og kynntist þar 21 árs kínverskri stúdent, Li Xinshi, sem var við nám við Dalian University of Technology. Í kjölfarið hófust náin samskipti þeirra, sem leiddu til þess að Zeus deildi myndefnum af þeim saman á Telegram-rás sinni. Þar mátti sjá myndir og myndskeið þar sem Li var léttklædd og nánast nakin.
Efnið var að sögn birt með samþykki beggja aðila en fékk mikla dreifingu áður en það var fjarlægt. Zeus hefur síðar fullyrt að hann hafi ekki áttað sig á því að myndbirtingin gæti haft alvarlegar afleiðingar.

Mynd: x.com / ZeusCSGO
Vísað úr skóla
Stuttu síðar greindi Dalian-háskólinn frá því að Li hefði verið vísað úr námi. Skólinn rökstuddi ákvörðunina með tilvísun í „óviðeigandi hegðun sem hafði neikvæð áhrif á orðspor stofnunarinnar“. Vísað var til siðareglna háskólans og samfélagslegra viðmiðana í Kína, en ekkert benti til þess að lög hefðu verið brotin.
Málið vakti mikla umræðu á kínverskum samfélagsmiðlum þar sem almenningsálitið skiptist í tvennt. Sumir gagnrýndu Li fyrir hegðun sína, á meðan aðrir bentu á að refsiaðgerðir virtust einhliða og að Zeus sætti engri formlegri ábyrgð.
Yfirlýsing Zeus: „Ég sá ekki fyrir afleiðingarnar“
Í kjölfar gagnrýninnar gaf Zeus út yfirlýsingu á sínum eigin samfélagsmiðlum þar sem hann viðurkennir að hafa sýnt dómgreindarleysi og harmar málið.
„Fyrir um sex mánuðum birti ég nokkur myndskeið á Telegram af mér og stúlku sem ég kynntist í Shanghai. Andlit okkar sáust á upptökunum, en þær innihéldu hvorki klámfengið efni né neitt óviðeigandi.
Þá virtist þetta einfaldlega vera saklaus stund úr lífinu. Ég áttaði mig ekki á því að birtingin gæti haft áhrif á einkalíf eða aðstæður einhvers annars.
Síðan komst ég að því að stúlkan var í sambandi og hafði orðið fyrir mikilli gagnrýni og fordómum vegna málsins. Ég sé mjög eftir því hvernig hlutirnir þróuðust.
Um leið og ég gerði mér grein fyrir alvöru málsins, fjarlægði ég myndböndin tafarlaust. Það var aldrei ætlun mín að særa neinn – þetta var ekki gert af illvilja.
Ég ætla mér ekki að fela mig né bera fyrir mig afsakanir – ég vil aðeins vera heiðarlegur.
Orðrómur sem hefur farið af stað um að ég hafi verið giftur eða í sambandi eru algerlega rangar – ég var hvorki kvæntur né í neinu sambandi á þessum tíma.
Ég bið ykkur vinsamlegast að stöðva hatrið. Við gerum öll mistök og ég hef dregið lærdóm af mínum. Ég vil halda áfram – með virðingu fyrir öllum sem komu við sögu.
Ef ég get með einhverjum hætti aðstoðað stúlkuna sem varð fyrir afleiðingunum, er ég fús til þess.“
About six months ago, I posted a few videos on Telegram with a girl I met in Shanghai.
Our faces were visible, but there was no explicit content or anything disrespectful in those videos.At the time, it felt like just a normal moment from life. I didn’t realize it could affect…
— Zeus ✌️ (@ZeusCSGO) July 13, 2025
Framvinda málsins hefur vakið upp spurningar um persónuvernd, samfélagsleg gildi og ólíka menningarlega sýn á siðferði og ábyrgð.
Sérfræðingar í fjölmiðlum og netmenningu í Kína hafa bent á að samfélagslegir þrýstihópar, hefðir og kynbundin viðmið hafi mikil áhrif á niðurstöðu mála sem þessi – þar sem aðeins einn aðili virðist hafa þurft að gjalda fyrir það sem átti sér stað með samþykki beggja.
Mynd: escorenews.com


