Aðvörun vegna efnis: Í þessari grein er fjallað um málefni á borð við kynferðislega áreitni og kynferðisbrot.
Alvarlegar ásakanir hafa komið fram á hendur kínverska rafíþrótta atvinnuspilaranum Sike „z4kr“ Zhang, AWPer hjá Lynn Vision. Um er að ræða ásakanir sem varða bæði sviksemi í samböndum, fjárkúgun og meðvitaða útbreiðslu kynsjúkdóma, sem gætu leitt til málsóknar og jafnvel fangelsisrefsingar.
Málið komst í hámæli eftir að fyrrverandi kærasta z4kr birti efni á Douyin, kínversku TikTok útgáfunni, þar sem hún lagði fram skjáskot og samtöl sem áttu að sýna fram á grófa misnotkun. Þar kom meðal annars fram að hann hafi átt í samskiptum við margar konur samtímis án þess að þær vissu hver af annarri, auk þess sem hann er sakaður um að hafa smitað nokkrar þeirra af kynsjúkdómum eftir BLAST Austin Major 2025.
concerning the amount of people who read
„During BLAST Austin Major 2025: hired a prostitute, contracted trichomoniasis (STD), then infected his girlfriend in China.“
and still went „i wanna be him so bad“ https://t.co/BXBYLBOLjK
— Ludvig Nilsson 🇺🇦 (@quacke69) August 14, 2025
Í fréttum er sérstaklega nefnt að konur hafi greinst með sjúkdóma á borð við trichomoniasis, mycoplasma, klamydíu, HSV og HPV. Þar að auki er z4kr sakaður um að hafa safnað yfir 4.000 myndum af konum sem hann nýtti sér til yfirráða og mögulegrar fjárkúgunar. Þeim var jafnvel boðið allt að 50.000 júan (jafngildir u.þ.b. 970.000 íslenskum krónum miðað við gengi dagsins í dag) til að þegja yfir því sem gerst hafði.
Lynn Vision AWPer – 🇨🇳 z4kr exposed for juggling multiple girlfriends — scandal shakes Chinese CS scene.
z4kr faces serious accusations:
— Late December: flirted & dated a fan, promised to make her his mistress, then offered ¥50,000 (~$6.9k) for silence. She later fell into… pic.twitter.com/9o7Hx7wqGh
— CSGORUN (@csgorun_family) August 13, 2025
Á kínverskum samfélagsmiðlum á borð við Douyin, Bilibili og X (fyrrum Twitter) hefur málið vakið gífurlega athygli. Þar er fjallað ekki einungis um persónuleg svik heldur einnig um alvarlegt öryggis- og siðferðisvanda í rafíþróttaheiminum.
Nokkrar konur hafa þegar tilkynnt að þær hyggist sækja málið fyrir dómstólum í sameiginlegri hópmálsókn. Samkvæmt kínverskum lögum getur meðvituð útbreiðsla kynsjúkdóma haft í för með sér fangelsisdóm.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikmenn í alþjóðlegu Counter-Strike samfélaginu lenda undir smásjánni vegna hegðunar utan leikvangsins. Á síðustu árum hafa fleiri dæmi komið upp um meint kynferðislegt áreiti og óviðeigandi framkomu, sem hafa haft í för með sér brottrekstur úr liðum eða bann frá útsendingum.
z4kr hefur hingað til ekki tjáð sig opinberlega um málið og félagið Lynn Vision hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla né gefið út neina opinbera afstöðu.
Ljóst er þó að ásakanirnar hafa þegar skaðað orðspor hans og sett framtíð hans í atvinnugreininni í mikla óvissu. Ef málið fer fyrir dóm gæti það orðið eitt af alvarlegustu réttarmálum sem komið hafa upp í tengslum við atvinnuspilun í Counter-Strike.
Heimildir byggðar á samantekt úr erlendum fjölmiðlum og samfélagsmiðlum.
Mynd: Steam




