Kraftvéladeildin í Dota 2 fer af stað laugardaginn 6. september og stendur fram í 21. nóvember þegar úrslitaleikir verða háðir.
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ) og verður leikið í Round Robin deild þar sem öll liðin mætast áður en best settu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni.
Kraftvéladeildin hefur fest sig í sessi sem ein af helstu reglulegu keppnum í Dota 2 hér á landi og búast má við spennandi baráttu um hvert einasta stig fram að úrslitum.
Mynd: dota2.com




