
Enn ríkir stemning meðal leikjaspilara eftir hinn svokallaða Mario dag sem haldinn var hátíðlegur í gær, 10. mars. Dagsetningin er ekki valin af tilviljun, því ritað á ensku verður hún „Mar 10“, sem minnir á nafnið Mario. Nintendo hefur um árabil nýtt daginn til að fagna einni frægustu tölvuleikjapersónu heims.
Saga Mario nær aftur til ársins 1981 þegar hann birtist fyrst í spilakassanum Donkey Kong. Þá gekk hann undir nafninu Jumpman, en á næstum 45 árum hefur hann orðið ein þekktasta persóna tölvuleikjasögunnar og safnað að sér gríðarlegum aðdáendahópi.
Mario leikjaserían er jafnframt sú söluhæsta í heimi. Allir leikir og afleggjara hennar hafa samanlagt selst í að minnsta kosti 907,7 milljónum eintaka. Þar af koma 14,03 milljónir eintaka frá leiknum Mario Kart World sem kom út árið 2025 og er söluhæsti leikurinn á Nintendo Switch 2. Til samanburðar hefur upprunalega Switch-tölvan selst í 155,37 milljónum eintaka og nálgast þar með stöðu PlayStation 2 sem mest seldu leikjatölvu allra tíma.
Mario tengist fjölda heimsmeta
Mario hefur einnig orðið innblástur fyrir margvísleg heimsmet. Japanska spilaran Audrey Mina setti árið 2025 met þegar hún spilaði Mario-leiki samfleytt í 60 klukkustundir, 17 mínútur og 58 sekúndur. Metið var sett á tímabilinu 2. til 5. maí sama ár og telst lengsta leikjamaraþon sem helgað er Mario-leikjum.
Á hinn bóginn reyna aðrir að klára leikina á sem skemmstum tíma. Leikurinn Super Mario 64 er sá sem oftast hefur verið hraðspilaður í svokölluðum speedrun-keppnum. Samkvæmt Speedrun.com höfðu 49.013 slíkar tilraunir verið skráðar fyrir leikinn þann 12. júní 2025, fleiri en fyrir nokkurn annan tölvuleik.
Metbaráttan í Super Mario Bros. hefur einnig verið æsispennandi. Þann 18. desember 2025 náði bandaríski hraðspilarinn averge11 nýju heimsmeti þegar hann kláraði leikinn á aðeins 4 mínútum og 54,415 sekúndum. Hann tók metið af sjálfum sér, en fyrra met hans var 4 mínútur og 54,515 sekúndur.
Þar áður hafði Niftski átt metið með 4 mínútur og 54,565 sekúndur. Munurinn er því orðinn hárfínn og margir telja að brátt verði náð því sem kallað er fullkomið stærðfræðilegt spil.
Luigi, bróðir Mario, hefur einnig átt sinn þátt í sögunni. Þótt hann sé þekktastur úr Super Mario Bros. kom hann fyrst fram í leiknum Mario Bros, árið 1983 á Game & Watch tækinu. Mario heldur þó áfram að vera stjarnan sjálf. Árið 2010 var til dæmis sett heimsmet þegar 230 manns klæddust Mario-búningi á sama stað í borginni Chifeng í Kína.
Mario slær í gegn í kvikmyndahúsum
Mario og Luigi hafa einnig slegið í gegn á hvíta tjaldinu. Teiknimyndin The Super Mario Bros Movie frá 2023 varð tekjuhæsta kvikmynd allra tíma sem byggð er á tölvuleik. Frá frumsýningu 5. apríl 2023 til 19. febrúar 2025 nam heildartekjan yfir 1,3 milljörðum dollara.
Næstum hálfri öld eftir fyrstu skref Jumpman virðist ljóst að Mario heldur áfram að setja mark sitt á leikjaheiminn. Hvort sem um er að ræða heimsmet, speedrun eða sigurför í kvikmyndahúsum virðist vinsældasaga ítalska pípulagningamannsins hvergi nærri lokið.
Mynd: nintendo.com




