Það er ýmislegt að gerast í herbúðum Mistfall Hunter og ljóst að teymið ætlar sér ekki að gefa út hálfsoðna útgáfu, en staðfest er að bæði prófanir og útgáfa frestist. Á móti kemur að leikurinn mun koma út samtímis á PS5, Xbox og PC í júlí 2026.
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að nýjum klassa, Withered Knight, ásamt ýmsum kerfisbreytingum og lagfæringum byggðum á ábendingum úr fyrri prófunum.
Stærsta breytingin snýr að bardagakerfinu, sem verður endurhannað til að gera spilunina frjálslegri og liprari. Samkvæmt þróunarteyminu hefur sú vinna reynst flóknari en búist var við, sérstaklega með tilliti til jafnvægis milli PvP og PvE.
BETA 4 prófun fer fram á Steam Next Fest þann 15. júní 2026 og stefnt er að útgáfu um allan heim í júlí. Einnig er fyrirhuguð lokuð beta í apríl 2026 þar sem frekari ábendingar verður safnað.

Myndir: mistfallhunter.com





