
Japanski leikjarisinn Nintendo hefur unnið dómsmál gegn áhrifavaldinum Jesse Keighin, sem var kærður fyrir að streyma ólöglega út óútkomnum leikjum. Samkvæmt frétt Eurogamer var Keighin sakaður um að hafa notað óleyfileg eintök leikja og miðlað þeim á netinu áður en þeir komu formlega út.
Nintendo hélt því jafnframt fram að Keighin hefði gert gys að fyrirtækinu. Hann á að hafa sent bréf þar sem hann hrósaði sér af því að eiga „þúsund fölsk notendanöfn“ og sagðist geta „haldið þessu áfram allan daginn“. Á samfélagsmiðlum skrifaði hann síðar:
„Þið hefðuð átt að kynna ykkur mig betur. Þið rekið fyrirtæki, ég stýri götunum.“
Eftir úrskurð alríkisdómstóls í Colorado var Keighin dæmdur til að greiða 17.500 dali eða um 2,2 milljónir króna í bætur. Þar af voru 10.000 dalir (1,2 milljónir króna) fyrir nýjustu brotin, þar sem hann streymdi leiknum Mario & Luigi: Brotherhood, og 7.500 dalir (950 þúsund) í sektir fyrir fimmtán fyrri brot á höfundarrétti og öryggisráðstöfunum Nintendo.
Dómarinn hafnaði þó tveimur af varanlegum kröfum Nintendo. Annars vegar beiðni fyrirtækisins um að láta eyða tækjum sem notuð voru til að komast fram hjá verndarkerfum, sem dómurinn taldi „óskýra“ og „ósanngjarna“ þar sem Keighin notaði netmiðla og emu services. Hins vegar var hafnað kröfu um að víkka úrskurðinn til ótilgreindra þriðju aðila, þar sem Nintendo hefði ekki tilgreint hverjir þeir væru.
Málið hefur vakið athygli í leikjasamfélaginu sem nýjasta dæmi um hvernig Nintendo beitir sér af hörku gegn brotum á höfundarrétti og dreifingu efnis fyrir útgáfu.
Sjá einnig: Nintendo krefst 4,5 milljóna dollara af Reddit-stjórnanda vegna ólöglegrar dreifingar Switch-leikja
Mynd: Nintendo.com



