Á stórmótinu Skjálfta 2025 verður ekki aðeins keppt í tölvuleikjum heldur einnig í útliti og fagurfræði. Skipuleggjendur hafa tilkynnt að veitt verði sérstök verðlaun í tveimur nýjum flokkum: Bestu treyjurnar og Besta settupið.
Þar með er verið að fagna bæði hugviti liða við hönnun eigin búninga og þeirri ástríðu sem leikmenn leggja í að setja upp tölvubúnaðinn sinn. Samkvæmt skipuleggjendum er þetta leið til að lyfta stemningunni á mótinu, hvetja til meiri sköpunargleði og sýna að Skjálfti er ekki aðeins um leiki heldur líka samfélagið og menninguna í kringum þá.
Verðlaunin verða afhent samhliða lokaatburðum mótsins og áhorfendur geta átt von á að sjá bæði litríkustu treyjurnar og áhrifamestu setuppin innan keppnishallarinnar.




