Close Menu
    Nýjar fréttir

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026
    1 2 3 … 352 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Nýtt upphaf hjá Astralis
    Astralis - Jakob Lund Kristensen og Jonas Gundersen
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Nýtt upphaf hjá Astralis

    Chef-Jack24.09.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Astralis - Jakob Lund Kristensen og Jonas Gundersen
    Jakob Lund Kristensen og Jonas Gundersen

    Astralis, eitt þekktasta nafn heims í Counter-Strike, hefur gengið í gegnum tímamót. Félagið sem heldur utan um hið goðsagnakennda lið var nýlega keypt af Fusion Esports Group, danskur fjárfestahópur sem setur stefnuna hátt.

    Að hópnum standa Jakob Lund Kristensen og Jonas Gundersen. Jakob er ekki ókunnugur sviðsljósinu, en hann er meðstofnandi bæði Astralis og BLAST og hefur yfir áratugarreynslu í rafíþróttum. Jonas, sem áður keppti sjálfur sem atvinnumaður, kemur inn með alþjóðlega innsýn og var nýverið framkvæmdastjóri hjá Ninjas in Pyjamas, sem fór á markað hjá Nasdaq á síðasta ári.

    Með í fjárfestahópnum eru einnig frumkvöðlar á borð við Sander Janca (Flatpay), Thorbjørn Rønje (Bifrost Studios) og Sebastian Seilund (Userflow), svo fátt eitt sé nefnt.

    Jakob Lund Kristensen segir í tilkynningu:

    „Astralis er eitt stærsta vörumerki rafíþrótta, með gífurleg áhrif á heila kynslóð danskra leikjaspilara. Enn er gríðarlegt tækifæri til staðar, bæði í viðskiptum og í keppni. Við erum að byggja upp nýtt Astralis með ferska orku og nýjum aðferðum, en áfram með áherslu á frammistöðu.

    Fyrsti leikurinn er nú þegar á föstudag með nýjum leikmanni, og þolinmæði er lykilatriði, en okkar forgangur er ávallt að skapa leikmönnum bestu mögulegu skilyrði til að ná árangri til lengri tíma.“

    Jonas Gundersen tekur í sama streng:

    „Með Astralis komst Counter-Strike úr kjallara LAN-senunnar yfir í alþjóðlegt svið þar sem milljónir fylgjast með. Þetta er frábær arfleið og saga sem fellur fullkomlega að sýn Fusion, sem hér fer í sína fyrstu yfirtöku.

    Leikjaiðnaðurinn heldur áfram að vaxa og við trúum því að næsta vaxtarskeið lyfti allri greininni upp á nýjar hæðir.“

    Astralis sitja nú í 13. sæti heimslistans, en liðið hefur áður náð toppsætinu og á sínum tíma talið eitt besta Counter-Strike lið allra tíma.

    Mynd: aðsend / Astralis.gg

    Astralis counter strike Counter Strike 2
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Íslenska PUBG samfélagið
      PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí
      14.07.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.