Rafíþróttasamband Íslands, í samstarfi við Mílu, stendur fyrir fyrstu verðlaunahátíð rafíþrótta á Íslandi. Viðburðurinn, Rafíþróttamaður ársins, fer fram föstudagskvöldið 22. maí kl. 18:00–20:00 í Next Level Gaming.
Um er að ræða tímamót í íslenskum rafíþróttum og markar hátíðin upphaf að árlegri hefð þar sem framúrskarandi árangur í rafíþróttum á Íslandi fær formlega viðurkenningu.
Ásamt því að krýna Rafíþróttamann ársins verða einnig veitt verðlaun til leikmanna sem hafa staðið sig sérstaklega vel á tímabilinu 2025/26 í helstu keppnisgreinum sambandsins.
Viðburðurinn er opinn öllum og er ætlaður að sameina keppendur, aðstandendur, stuðningsfólk og áhugafólk um rafíþróttir.
Verðlaun verða veitt fyrir eftirfarandi flokka:
– Rafíþróttamaður ársins 2026
– Rafíþróttakona ársins 2026
– Rafíþróttakarl ársins 2026
– Bjartasta vonin 2026
– Leikmaður ársins í Counter‑Strike 2026
– Leikmaður ársins í League of Legends 2026
– Leikmaður ársins í Rocket League 2026
– Leikmaður ársins í Dota 2 2026
– Leikmaður ársins í Overwatch 2026
– Leikmaður ársins í Fortnite 2026
Smelltu hér til þess að skoða viðburðinn á Facebook og fylgjast með öllum uppfærslum tengdum Rafíþróttamanni ársins 2026.




