Leikjaframleiðandinn Rockstar Games, sem vinnur nú að væntanlega risaleiknum Grand Theft Auto 6, segir að uppsagnir rúmlega 30 starfsmanna nú á dögunum hafi ekkert haft með verkalýðsmál að gera. Samkvæmt fyrirtækinu voru starfsmennirnir látnir fara fyrir að leka trúnaðarupplýsingum um verkefni í opinberum spjallrásum.
Sjá einnig: Rockstar sakað um verkalýðsbrot eftir hópuppsögn í tengslum við GTA 6
„Í síðustu viku gripum við til aðgerða gegn litlum hópi einstaklinga sem voru staðnir að því að hafa deilt og rætt trúnaðarupplýsingar á opinberum vettvangi, sem brýtur gegn innri reglum fyrirtækisins,“
sagði talsmaður Rockstar í samtali við Bloomberg.
„Þetta tengdist á engan hátt rétt fólks til að ganga í stéttarfélag eða taka þátt í slíkum félagssamtökum.“
Rockstar hefur ekki viljað skýra nánar hvaða upplýsingar voru sagðar hafa lekið út, né hversu alvarlegt brotið var talið.
Áður höfðu bæði Bloomberg og Independent Workers’ Union of Great Britain (IWGB) greint frá því að hópurinn hefði verið í lokuðum spjallhópi á Discord í tengslum við starf sitt innan verkalýðsfélagsins þegar hann var rekinn. Móðurfélagið Take-Two Interactive kallaði uppsagnirnar þá „alvarlegt agabrot“.
Forseti IWGB, Alex Marshall, svaraði nýjustu ásökunum Rockstar með hörðum orðum.
„Yfirstjórnin sýnir að henni er sama um tafir á útgáfu GTA 6. Hún setur það í forgang að brjóta niður verkalýðshreyfingu með því að ráðast á fólkið sem raunverulega gerir leikinn mögulegan,“
sagði Marshall í samtali við Bloomberg.
Hann hélt því jafnframt fram að starfsmennirnir hefðu einungis rætt um „rétt sinn til heilbrigðs vinnuumhverfis og samstöðu innan hópsins“.
IWGB hefur ekki svarað nánar fyrirspurnum fjölmiðla um málið.
Grand Theft Auto 6 hefur þegar seinkað einu sinni og áætlað er að leikurinn komi út í maí 2026. Um er að ræða einn leynilegasta þróunarferil stórleiks frá upphafi, en minnt er á umfangsmikinn gagnaleka árið 2022 sem afhjúpaði óútkomið myndefni úr leiknum. Síðan þá hefur Rockstar einungis opinberað tvær stiklur úr leiknum.
Mynd: rockstargames.com




