Goichi Suda, betur þekktur sem Suda51, stendur við stóru orðin. Eftir að hafa lofað fersku myndefni úr nýjasta leiknum sínum þann 4. desember, bætti hann ekki aðeins í heldur staðfesti einnig útgáfudag Romeo Is A Dead Man.
Samkvæmt tilkynningu mun leikurinn koma út 11. febrúar 2026. Hann verður aðgengilegur á PlayStation 5, Xbox Series X|S og Steam. Suda51 leyfði sér að hnýta svolítið í tiltekið árið 2026 þegar hann opinberaði dagsetninguna og sagði að Grasshopper hefði unnið sitt „game of chicken“ gegn „hóstnefnumenginnöfn“ ákveðnum stórleik sem hefur tafist tvisvar. Að hans sögn var aldrei ætlunin að gefa leikinn út í maí.
Hann segir þróunarhópinn vera kominn á það stig að kaffið renni á sjálfstýringu og hugmyndirnar taki bókstaflega yfir meðan þeir ganga frá síðustu útfærslum.
Engin áform eru um útgáfu á Nintendo Switch 2 að svo stöddu. Suda51 segir þó að vilji sé fyrir hendi að færa leikinn á nýjustu vél Nintendos, en það muni ráðast alfarið af þeim tækniprófunum sem nú standa yfir.
„Ég myndi persónulega elska að koma leiknum á Switch 2. Það fer bara eftir niðurstöðunum,“
segir hann.
Fyrsta nýja IP Grasshopper Manufacture í áratug
Grasshopper Manufacture hefur lengi verið þekkt fyrir frumlega stílfesta ofbeldisleiki á borð við Killer7 og No More Heroes. Romeo Is A Dead Man markar fyrstu nýju hugmyndafræðina frá stúdíóinu í tíu ár og er langt frá því að fara hljótt í útfærslum. Hér er grafík, leikstíll og frásögn teymisins tekin upp á næsta stig með nýjum og gjörsamlega óhefðbundnum söguheimi.
Nýtt gameplay-myndband fylgdi tilkynningunni ásamt uppfærðri lýsingu á leiknum. Þar er sögð saga Romeo Stargazer, sérstaks umboðsmanns FBI Space-Time deildarinnar, sem er rifinn frá dauðans dyrum þegar hann öðlast dularfulla grímu að nafni DeadGear.
Þar heldur hann inn í heim þar sem hann eltir útlagana sem enginn annar þorir að snerta. Á leiðinni þarf hann ekki bara að kljást við undarlegar víddir og óvænta óvini heldur einnig að finna út hvað orðið hefur af Juliet, dularfullu kærustunni.
Leikurinn er þriðja útgáfa Grasshopper sem þeir gefa út sjálfir, eftir Travis Strikes Again árið 2019 og No More Heroes III árið 2021. Romeo Is A Dead Man er þó fyrsta nýja IP þeirra í heilan áratug og teymið tekur skýrt fram að áhættan sé þess virði. Suda51 segir leikinn vera djarfari vísindaskáldsagnaverk en nokkuð sem þeir hafa áður gert.
Hann nefnir áhrif frá bæði Back to the Future og Rick and Morty. Hugmyndin kviknaði, að hans sögn, þegar hann hugsaði með sér:
„Hvað ef Marty hefði dáið í Back to the Future og Doc hefði þurft að bjarga honum? Hvernig saga væri það?“
Myndir: aðsendar / grasshopper.co.jp






