Amazon Games hefur tilkynnt að rekstri New World Aeternum verði hætt og þar með lýkur stormasömu kaflaskilum í sögu þessa opna netleikjar. Í tilkynningu sem birt var á opinberri vefsíðu útgefandans kemur fram að þrátt fyrir stöðugar viðbætur, endurbætur og endurútgáfu á leikjatölvur hafi orðið sífellt erfiðara að halda úti reglulegu nýju efni með sjálfbærum hætti.
Rekstri New World Aeternum lýkur
„Eftir vandlega yfirferð á rekstri leiksins og framtíðarhorfum hans höfum við komist að þeirri niðurstöðu að áframhaldandi þróun sé ekki lengur fjárhagslega raunhæf,“
segir í tilkynningu Amazon Games. Þar er jafnframt tekið fram að leikmenn sem hafa keypt leikinn haldi aðgangi sínum fram að lokadegi, en rekstri hans verður hætt um áramótin 2026 til 2027.
Sjá einnig: Endalok New World: Aeternum í sjónmáli: Amazon heldur leiknum gangandi út árið 2026
Sterk byrjun en erfiður lærdómur
Leikurinn kom fyrst út á PC árið 2021 og vakti strax mikla athygli. Á hápunkti sínum spiluðu yfir 900.000 manns leikinn samtímis og loforð um víðfeðma könnun og átök fylkinga á eyjunni Aeternum drógu að sér fjölda spilara.
Upphafið einkenndist þó af tæknilegum vandamálum og göllum sem leiddu til þess að margir hurfu á braut. Þróunarteymið gafst ekki upp og hélt áfram að bæta við tímabilum og efni sem endurheimti að hluta til traust samfélagsins.
Endurreisn með uppfærslum
Árið 2024 var leikurinn endurmerktur sem New World Aeternum og kom þá einnig út á leikjatölvum. Með krossspilun og betrumbættu bardagakerfi fékk leikurinn nýtt líf, en notendatölur náðu engu að síður ekki þeim hæðum sem vonast hafði verið eftir. Nú hefur síðasta tímabilið, Nighthaven, verið framlengt og mun marka endapunkt ferðarinnar.
Hagræðing hjá Amazon setur strik í reikninginn
Á bak við ákvörðunina eru einnig víðtækari áskoranir innan Amazon samstæðunnar. Samkvæmt erlendum miðlum hafa um 14.000 störf verið skorin niður í umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum, þar sem leikjadeildin varð illa úti. Áherslan hefur færst frá stórum og metnaðarfullum innanhúsverkefnum yfir í meiri kostnaðaraðhald og skilvirkni.
Brottför Amazon Games frá eigin MMO þróun vekur spurningar um langlífi slíkra leikja í síharðnandi samkeppni. Málið undirstrikar jafnframt hversu erfitt getur verið að halda úti stórum netleikjum til lengri tíma, jafnvel þegar þeir njóta sterkrar byrjunar og baklands eins stærsta tæknifyrirtækis heims.
Samfélagið bregst við og óvænt tilboð kemur fram
Ákvörðunin hefur vakið sterk viðbrögð innan samfélagsins og jafnvel opnað dyr sem fáir áttu von á. Skömmu eftir að lokun leiksins var staðfest bauð Alistair McFarlane, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og stjórnarmaður hjá Facepunch, Amazon allt að 25 milljónir Bandaríkjadala jafngilda um 197,5 milljónum íslenskra króna fyrir New World, í þeim tilgangi að halda leiknum á lífi. McFarlane, sem stendur að baki leikjum á borð við Rust og Garry’s Mod, lét fylgja með að:
„leikir ættu aldrei að deyja“.
Games should never die.
— Alistair McFarlane (@Alistair_McF) January 15, 2026
Þótt lokun leiksins sé enn rúmt ár er það alltaf sársaukafull stund fyrir MMO samfélög þegar endapunktur er settur. Ólíkt hefðbundnum tölvuleikjum eru MMO-leikir lifandi sýndarheimar þar sem þúsundir leikmanna byggja upp varanleg tengsl, gildin, samfélög og jafnvel daglegt líf. Fyrir marga jafngildir lokun slíkra leikja því að missa tengsl við staði og fólk sem hefur haft raunverulegt gildi.
Sú tilfinning er sérstaklega sterk í kringum New World, enda hafði leikurinn sýnt batnandi þróun með nýjustu uppfærslum og verið á hægri uppleið í leikmannafjölda. Innan samfélagsins hefur því skapast umræða um hvort og hvernig megi halda leiknum á lífi, enda eru fordæmi fyrir slíku.
Oft er vísað til City of Heroes, ofurhetju-MMO sem var lokað árið 2012 af útgefandanum NCSoft. Aðdáendur settu þá upp einkarekna netþjóna og eftir að kóði leiksins lak árið 2019 spruttu upp fjölmargar útgáfur. Ein þeirra, Homecoming, hlaut að lokum opinbert leyfi NCSoft árið 2024 til að reka leikinn löglega. Slík niðurstaða er líklega sú besta sem aðdáendur New World geta vonast eftir.
Það væri þó mun sterkari staða ef reynd leikjastúdíó tæki við keflinu. Amazon hefur raunar sýnt að það er ekki alfarið andsnúið því að selja verkefni áfram, en samhliða fjöldauppsögnum innan leikjadeildarinnar seldi fyrirtækið MOBA-leikinn March of Giants til Ubisoft. Þar fylgdi þó einnig þróunarteymi leiksins í Montréal, sem er ólíkt stöðunni hjá New World þar sem stór hluti upprunalega teymisins er talinn horfinn.
Það gerir langtímarekstur New World erfiðan. Ólíkt sandkassaleikjum á borð við Rust og Garry’s Mod byggir MMO-leikurinn fyrst og fremst á efni sem þróunaraðilar skapa sjálfir, fremur en notendagerðu efni. Jafnvel þótt Facepunch fengi leyfi til að taka við leiknum þyrfti stúdíóið að setja saman sérstakt teymi til að viðhalda honum og þróa nýtt efni reglulega.
Myndir: Amazon Games






