
Electronic Arts, oft kallað EA, var stofnað árið 1982 af Trip Hawkins, fyrrverandi stjórnanda hjá Apple. Frá upphafi hefur fyrirtækið verið leiðandi afl í þróun og útgáfu tölvuleikja á heimsvísu.
Samkvæmt nýjustu fregnum stendur bandaríski leikjarisinn Electronic Arts frammi fyrir einni stærstu viðskipti leikjaiðnaðarins. Hópur einkafjárfestingarfyrirtækja, þar á meðal Silver Lake, ásamt opinbera fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu (PIF), vinnur nú að því að kaupa EA í heild sinni fyrir allt að 50 milljarða dollara, eða um 7.100 milljarða króna.
Samkvæmt heimildum Wall Street Journal gæti samningurinn verið kynntur opinberlega strax í næstu viku. Ef af verður myndi hann teljast stærsta „leveraged buyout“ í sögunni, en til samanburðar var metið hingað til yfirtaka Texas-orkufyrirtækisins TXU árið 2007 sem nam 32 milljörðum dollara.
Sádi-arabíski sjóðurinn PIF hefur á síðustu árum lagt háar fjárhæðir í tölvuleikjaiðnaðinn. Hann á nú þegar hlut í stórfyrirtækjum á borð við Nintendo, Capcom og Nexon, og á alfarið SNK, útgefanda King of Fighters.
Yfirtakan á EA fellur inn í „Vision 2030“ áætlun Sádi-Arabíu sem miðar að því að dreifa tekjugrunni ríkisins frá olíu yfir í afþreyingar- og tækniiðnað.
Á sama tíma hafa gagnrýnendur bent á að fjárfestingar PIF séu hluti af svokallaðri „sportswashing“ eða „gamewashing“ stefnu, þar sem yfirvöld leitast við að bæta ímynd sína þrátt fyrir gagnrýnda mannréttindaskrá og einveldisstjórn.
Ef samningurinn gengur eftir mun EA hverfa af hlutabréfamarkaði og losna undan þrýstingi hluthafa, en á móti standa nýir eigendur sem vekja töluverðar siðferðilegar spurningar.
Mynd: ea.com


