
Steam notandinn SonixLegend hefur slegið met sem fáir gætu ímyndað sér. Valve veitti honum nýverið sérstakt „Game Collector“ heiðursmerki eftir að hann náði yfir 40.000 keyptum leikjum á reikningnum sínum. Þar með er hann fyrsti notandinn til að ná þessum ótrúlega áfanga.
Samkvæmt SteamDB eru þó titlarnir á reikningnum hans margfalt fleiri eða um 97.000 talsins, en aðeins hluti þeirra telst til viðurkenndra leikja sem gilda fyrir merkið. Heildarverðmæti safnsins er metið á yfir 640 þúsund bandaríkjadali (um 77 milljónir króna), sem þýðir að það væri hrein martröð að týna lykilorðinu eða missa aðgang að þessum fjársjóði.

Þrátt fyrir þetta gífurlega safn er uppáhaldsleikur SonixLegend lítilfjörlegur í samanburði: Alien Swarm, frítt samvinnuskotleikur frá 2010 sem hann hefur spilað í meira en 550 klukkustundir. Hann á þó líka rúmlega 100 leiki sem hver um sig kostar yfir 200 dali (um 25 þúsund krónur).
SonixLegend er langt í burtu frá því að vera einn í þessum klúbbi, því á topp 20 lista yfir stærstu leikjasöfnin má finna marga sem hafa safnað meira en 30.000 titlum. Næsti keppinautur hans, sem gengur undir nafninu Ian Brandon Anderson, er með 39.497 leiki í sinni eigu og nálgast metið með ógnarhraða.
Metið sýnir enn og aftur hversu djúpt kanínuholan á Steam getur verið fyrir safnara sem vilja eignast „allt“. Fyrir aðra spilarana er þetta hins vegar bara önnur áminning um að við munum líklega aldrei spila okkur í gegnum backlog-ið okkar.
Myndir: skjáskot / Steam



