Sala leikjatölva Xbox á Bretlandsmarkaði hefur aldrei verið verri en árið 2025. Samkvæmt Chris Dring hjá The Game Business dróst sala Xbox saman um 39 prósent á árinu sem gerir þetta að versta ári frá upphafi fyrir vörumerkið í Bretlandi. Til samanburðar minnkaði sala á Sony PlayStation 5 um 12 prósent á sama tímabili.
Chris birti ekki sundurliðaðar tölur eða samanburð við aðra markaði en þróunin samræmist þeim upplýsingum sem hafa komið fram víðar á árinu. Allir þrír helstu framleiðendur leikjatölva, Nintendo, Sony og Microsoft, hafa fundið fyrir samdrætti milli ára. Staða Xbox virðist þó sérlega veik. Samkvæmt upplýsingum frá IGN hefur sala Xbox í Bandaríkjunum dregist saman um allt að 70 prósent en þar er meðal annars bent á tvær verðhækkanir í stuttri röð sem veigamikinn áhrifaþátt.
Sales of Xbox consoles were down 39% in the UK during 2025, making it comfortably the worst year on record for Xbox consoles. With the return of favourite Xbox franchises in 2026, might things improve this year?
— Christopher Dring (@Chris_Dring) January 2, 2026
Í leikjaiðnaðinum er löngu þekkt að framlegð af vélbúnaði er lítil og raunverulegur ávinningur felst fremur í hugbúnaði og leikjasölu. Það skýrir að hluta áherslubreytingu Microsoft sem hefur í auknum mæli lagt áherslu á að færa eigin leiki og Game Pass áskriftarþjónustuna yfir á önnur kerfi til að ná til stærri markhóps og tryggja tekjur.
Þetta eru dapurleg tíðindi fyrir þá sem hafa bundið traust sitt við Xbox sem leikjakerfi. Undanfarin misseri hafa einkennst af þúsundum uppsagna, niðurfelldum verkefnum á borð við Perfect Dark hjá The Initiative, Everwild hjá Rare og leik frá ZeniMax sem ekki hafði verið kynntur opinberlega. Þá hefur vélbúnaðarsalan hikstað og jafnvel sería á borð við Call of Duty hefur átt í erfiðleikum. Orðrómur hefur jafnframt verið á lofti um að skert markaðsáætlun hafi orðið til þess að Xbox sleppti því alfarið að birta hefðbundið ársyfirlit í stíl við svokallað „wrapped“ sem margar aðrar leikjafyrirtækja kynntu undir lok árs.
Þrátt fyrir mótlætið hefur Matt Booty, yfirmaður leikjaefnis og stúdía hjá Microsoft, reynt að slá jákvæðan tón. Hann staðfesti nýverið að Xbox muni halda Dev Direct-streymi síðar í mánuðinum og gaf til kynna að þar yrði sýnt meira efni en kæmist fyrir í einum þætti. Þar má vænta nýrra upplýsinga um væntanlegan Fable-leik, næstu skref í Forza Horizon-seríunni og hugsanlega fleiri verkefni innan Xbox Game Studios.
Á meðan er ljóst að árið 2025 verður lengi minnst sem eitt það erfiðasta í sögu Xbox, bæði hvað varðar sölu, ímynd og traust þeirra sem fylgjast grannt með þróun leikjaiðnaðarins.
Mynd: xbox.com




