
Mynd: skak.is / ÞB.
Undanúrslit Íslandsmóts Símans, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans lauk sunnudaginn 23. nóvember þegar þeir Símon Þórhallsson og Vignir Vatnar Stefánsson lögðu andstæðinga sína að velli.
Það var stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson sem lá nokkuð óvænt í valnum gegn FIDE-meistaranum Símoni Þórhallssyni sem þó hefur heldur betur komið á óvart í keppninni og lagði Jóhann Hjartarson að velli í 8-manna úrslitum.
Einvígið fór af stað með skrautlegri fyrstu skák. Símon tefldi eins og herforingi með svörtu mönnunum, losnaði við stakt peð og hafði biskupaparið og vann svo peð. Símon virtist eiga sigurinn vísann þegar ósköpin dundu yfir.
Einvígið í heild sinni má sjá á heimasíðu Skáksambands Íslands með því að smella hér.



