Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Skemmtilegt streymi hjá GameTíví – en svo birtust einkaskilaboð sem enginn bjóst við
    Skemmtilegt streymi hjá GameTíví - Death Stranding 2
    Óli Jóels og Dói
    Tölvuleikir

    Skemmtilegt streymi hjá GameTíví – en svo birtust einkaskilaboð sem enginn bjóst við

    Chef-Jack29.06.2025Uppfært15.07.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Skemmtilegt streymi hjá GameTíví - Death Stranding 2
    Meðal vinninga var glæsileg Death Stranding 2 Collector’s Edition með sérstakri styttu úr leiknum

    Í vikunni bauð GameTíví upp á beina útsendingu þar sem tölvuleikurinn Death Stranding 2 var spilaður í fyrsta sinn á rásinni. Þeir Óli Jóels og Dói leiddu áhorfendur í gegnum fyrstu þrjá tímana af leiknum og reyndist streymið bæði spennandi og skemmtilegt, með óvæntum uppákomum og glaðningum.

    Streymið hófst á því að Óli þakkaði áhorfendum kærlega fyrir að mæta og fylgjast með. Í kjölfarið sagði hann frá söguþræði leiksins í ítarlegri frásögn sem vakti forvitni Dóa, sem spurði spurninga af miklum áhuga.

    Á meðan á streymi stóð tilkynnti Óli einnig að þættirnir Nörd vikunnar muni snúa aftur í haust. Þar fá áhorfendur tækifæri til að senda inn myndir af sínum leikjasetupum og keppa um veglega vinninga fyrir það flottasta.

    Að þessu sinni var dregið í happdrætti þar sem vinningar að verðmæti 50.000 króna voru í boði. Meðal þeirra var glæsileg Death Stranding 2 Collector’s Edition með sérstakri styttu úr leiknum, auk Domino’s pizzukúpons. Sá heppni sem hreppti vinninginn var Akris.

    Skemmtilegt streymi hjá GameTíví - Death Stranding 2
    Óli Jóels og Dói

    Eitt óvæntasta augnablik kvöldsins átti sér stað þegar Dói birtir óvart einkaskilaboð í beinni útsendingu. Þar kom fram að hann er á leið í ferð til Kölnar í Þýskalandi síðar í sumar, þar sem stærsti tölvuleikjaviðburður heims, Gamescom, fer fram dagana 20.–24. ágúst. Nú er bara að vona að GameTíví fylgi Dóa og bjóði upp á beinar útsendingar frá viðburðinum.

    Spennandi og óhefðbundinn leikur – vert er að horfa á streymið frá GameTíví, þar sem einnig má sjá óvænt einkaskilaboð.  Smellið hér til að horfa á streymið á facebook.

    Myndir: skjáskot úr beinu útsendingunni

    Death Stranding 2: On the Beach Gamescom GameTíví
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.