KIA-Deildin í League of Legends hefst á morgun 3. september og stendur yfir til 22. nóvember þegar úrslitin fara fram. Keppnin er sett upp sem Round Robin deild þar sem öll lið mætast áður en best settu liðin halda áfram í úrslitakeppni.
Til gamans verður boðið upp á sérstakan Showmatch á Skjálfta í lok september, þar sem tvö efstu liðin í deildarkeppninni takast á.
Að mótinu stendur Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ), sem gerir ráð fyrir mikilli spennu og jöfnum viðureignum í vetur.
Mynd: leagueoflegends.com




